Laun ráðamanna og embættismanna hækkuðu um 2,6% 28. ágúst 2007 11:00 MYND/Pjetur
Kjararáð úrskurðaði fyrir skömmu að laun þeirra sem heyra undir ráðið myndu hækka þann 1. júlí s.l. um 2,6% að meðaltali. Laun nokkurra embættismanna voru einnig hækkuð um 3 launaflokka en það þýðir samsvarandi launahækkun. Í fyrstu frétt hér um málið urðu þau mistök að prósentu og launaflokkahækkun var lögð saman í dæmi lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Er beðist velvirðingar á þeim mistökum. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er launahæsti embættismaður þjóðarinnar og fær 1.771.000 kr. á mánuði eftir breytinguna. Geir H. Haarde forsætisráðherra fær 1.056.000 kr., aðrir ráðherra fá 953.000 kr. sem fyrr segir og þingmenn fá 531.000 kr. á mánuði. Af öðrum embættismönnum sem heyra undir Kjararáð má nefna, lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson sem fær 864.000 kr. á mánuði, Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson fær um 765.000 kr. á mánuði og Albert Jónsson sendiherra í Wasington fær 626.000 kr. á mánuði. Síðastnefnda talan er það sem sendiherrar Íslands fá séu þeir staðsettir erlendis. Séu þeir staðsettir hér innanlands bætast rúmlega 40.000 kr. við launin.Í úrskurði Kjararáðs segir m.a að með vísan til breytinga á launum og launakerfi ríkisstarfsmanna sem tilefni til þessarar breytinga á launum þeirra sem ráðið ákveður.Laun flestra þeirra hafa verið ákveðin þannig að þau skiptast mánaðarlaun og fastar greiðslur fyrir yfirvinnu, svokallaðar einingar. Sendiherrar fá þó ekki greiddar yfirvinnueiningar meðan þeir eru við störf erlendis. Sýslumenn fá hluta launa sinna greiddan með hliðsjón af árangri þeirra við innheimtu tiltekinna skatta."Kjararáð hefur ákveðið að breyta nú samsetningu heildarlauna þannig að mánaðarlaun hækki, yfirvinnueiningum fækki og ákvæði um árangurstengdan hluta launa sýslumanna verði breytt. Með þessu hækkar hlutfall mánaðarlauna (dagvinnulauna) af heildarlaunum hjá öðrum en forseta Íslands, ráðherrum og alþingismönnum, en laun þeirra eru ákveðin með öðrum hætti." segir m.a. í ákvörðun Kjararáðs.
Mest lesið „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun Innlent Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Erlent Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Innlent Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Erlent Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Innlent Miðflokki fatast flugið Innlent Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fleiri fréttir Vantrauststillagan sýni vanhæfni meirihluta Vöku Biðla til fólks að vera undirbúið undir vetrarfærð á morgun „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Ný bráðamóttaka að taka á sig mynd Miðflokki fatast flugið Vökuliðar frestuðu afgreiðslu á vantrauststillögu Samgöngustofa ógildir skoðanir á gúmmíbjörgunarbátum Tímamót og glæný könnun Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu „Dylgjur um menntastig“: Túlkun afbrotatölfræði innflytjenda þarfnist þekkingar Reykjadalur fær ekki styrki og fellir niður hluta starfsins Guðmundur Ingi í formlegar viðræður við Vor til vinstri Tekinn í tollinum með tíu kíló af ketamíni Reyna að hnýta lausa enda sem allra fyrst Endurnýjuðu gæsluvarðhald yfir grunuðum barnaníðingi Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Fjögur ár frá innrás Rússa og milljarðar bætast í ríkiskassann Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Lausir endar í Edition-málinu „Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum áföllum“ Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Biðja fólk um að fóðra ekki fuglana í kirkjugörðunum Sambandið við Evrópu þurfi ekki að vera já eða nei spurning Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið „Hverju eru þau að leyna? Hvað hafa þau að fela?“ Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Sjá meira