Innlent

Sala á tóbaki eykst þrátt fyrir reykingabann

Sala á tóbaki hefur aukist á Íslandi eftir að reykingabann var tekið upp á veitingastöðum. Mjög skiptar skoðanir eru um bannið.

Sala á sígarettum jókst um 6,3% í júní og júlí miðað við söluna í fyrra samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR. Þetta er meiri aukning en á ársvísu síðan í fyrra og á skjön við söluþróun í Bretlandi. 1. júlí síðastliðinn gekk reykingabann í gildi þar í landi og minnkaði sígarettusala strax um 7%.

Einar Geirsson veitingamaður á Kaffi Karólínu á Akureyri segir þetta stórfurðulegar niðurstöður og sýni að bannið sé rugl. Einar telur að veturinn verði vertum og veitingahúsum erfiður vegna bannsins, og hann hefði viljað að banninu yrði rift.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×