Innlent

Eftirliti ábótavant í farþegaflutningum

Framkvæmdastjóri eins stærsta rútubílafyrirtækis landsins segir eftirliti ábótavant í farþegaflutningum. Dæmi séu um óskoðaða hópferðabíla í akstri.

Framkvæmdastjóri SBA-Norðurleiðar, sem er næst stærsta hópferðafyrirtæki landsins, segir að burtséð frá atvikinu fyrir austan þar sem bílstjórinn hafi augljóslega brugðist hárrétt við i erfiðum aðstæðum, sé það svartur blettur og grafalvarlegt mál í umferðarmenningu hérlendis, að ekki sé virkt eftirlit með því hvort bílar séu skoðaðir eða ekki. Sérstaklega sé ábyrgð þeirra sem reki hópferðabíla mikil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×