Kvartanaherferð segir bareigandi, öskrandi óþolandi skríll segir íbúi 27. ágúst 2007 11:57 Margeir Margeirson: Íbúar við Laugaveg 76 búnir að fá sig fullsadda af gestunum á Mónakó.
Íbúar við Laugaveg 76 eru fyrir löngu búnir að fá sig fullsadda af gestum barsins Monakó. Margeir Margeirsson eigandi barsins segir að íbúarnir stundi skipulagða kvartanaherferð gegn sér. Teitur Þorkelsson einn íbúanna segir að bargestirnir séu öskrandi, óþolandi skríll og kvartanir til lögreglunnar undan þeim tilkomnar þar sem ekkert þýði að kvarta við gestina sjálfa, slíku sé mætt með hótunum. "Ástandið hefur stórversnað með tilkomu reykingarbannsins og núna er ónæðið af þessu fólki stöðugt frá ellefu á morgnanna og langt fram undir morgunn um helgar," segir Teitur. "Fyrir utan öskrin og ópin horfum við upp á fíkniefnasölu, barsmíðar og fólk pissandi utan í alla veggi. Þess vegna kvörtum við til lögreglunnar en það hefur ekki mikil áhrif." Margeir segir að um skipulega kvörtunarherferð sé að ræða til að koma í veg fyrir að barinn fái endurnýjað rekstrarleyfi sitt. Hann sé ekki eini bareigandinn við Laugarveginn sem lent hafi í slíku eftir að reykingarbannið komst á. "Þetta á við um alla staðina og ég tel að lögreglan sé að drukkna í kvörtunum af þessu tagi," segir Margir. Elísabet Snorradóttir formaður Húsfélagsins við Laugarveg 76 segir að félagið hafi ekki sent eina einustu kvörtun. Hinsvegar hafi málið verið rætt á húsfundum og það sé ljóst að ástandið sé algerlega óþolandi fyrir þá íbúanna sem eiga íbúðir út að portinu á bakvið staðinn þar sem gestirnir reykja. Þá hefur Vísir heimildir fyrir því að sonur hjóna í Bandaríkjunum, sem eiga íbúð að portinu, hafi flúið úr íbúinni skömmu eftir komuna til landsins fyrr í sumar og ekki sést síðan.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Fleiri fréttir „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Sjá meira