Innlent

Áfram lokanir á Nýbýlavegi vegna framkvæmda

MYND/Stöð 2

Nýbýlavegur verður áfram lokaður við Sæbólsbraut vegna tafa á framkvæmdum við færslu háspennustrengs. Framkvæmdirnar hófust á fimmtudag og átti að vera lokið í gær en ófyrirséð mál hafa tafið vinnuna. Þetta þýðir samkvæmt Vegagerðinni áframhaldandi óþægindi fyrir íbúa á Kársnesi, en miklar umferðartafir urðu á svæðinu fyrir helgi vegna framkvæmdanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×