Dæmdur nauðgari vill áfrýjun vegna heilaskaða Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2007 12:41 Jón Pétursson er margdæmdur ofbeldismaður.
Jón Pétursson, sem tvívegis hefur verið dæmdur fyrir nauðgun, hefur óskað eftir því að máli hans verði áfrýjað. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns, vill að dómkvaddir matsmenn meti sakhæfi hans og hvort refsing geti borið árangur. Jón var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur 19. júní fyrir að hafa ráðist á sambýliskonu sína á hrottafenginn hátt í byrjun desember síðastliðinn. Jón sló konuna hnefahöggi í andlitið, dró hann hana á hárinu inn í svefnherbergi. Hann skipaði henni að afklæðast og nauðgaði henni. Hann barði hana ítrekað með krepptum hnefa og flötum lófa, ógnaði henni með kjötexi og búrhnífi og sló hana með flötum blöðum axarinnar og hnífsins. Misþyrmingarnar stóðu yfir í hálfan sólarhring. Þann 26 apríl síðastliðinn dæmdi Hæstiréttur Jón Pétursson í fimm ára fangelsi fyrir brot gegn tveimur konum. Hann var sakfelldur fyrir að hafa ráðist á fyrrverandi sambýliskonu sína. Það þótti sannað að hann hafi slegið hana margsinnis og sparkað í hana. Þá hafi hann ruðst í heimildarleysi inn í íbúð hennar, ráðist á hana með höggum og spörkum og dregið um á hárinu. Þá var hann dæmdur fyrir að hafa haldið fyrrverandi unnustu sinni í átta tíma á heimili hennar. Hann sparkaði í hana og sló, dró hana um á hárinu, sló höfði hennar við gólfið og nauðgaði henni í þrígang. Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns, vill að rannsakað verði með taugasálfræðilegu mati hugsanlegur framheilaskaði sem Jón telur sig hafa fengið er hann varð fyrir slysi í Egyptalandi og hugsanlegar afleiðingar þess skaða. Ríkissaksóknari hafnar kröfu Jóns og segir að geðrannsókn hafi áður farið fram.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Fleiri fréttir Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Sjá meira