Miklar líkur á eldgosi á næstunni 23. júlí 2007 12:34
Miklar líkur eru á að eldgos verði á Íslandi á næstunni, að mati Páls Einarssonar jarðeðlisfræðings.. Nokkrar þekktar eldstöðvar eru að gera sig líklegar til goss og aðrar eru í startholunum. Jarðhræringarnar norðan Vatnajökuls gætu allt eins bent til eldgoss sé í aðsigi í Kverkfjöllum eða Öskju. Tíðir skjálftar við Upptyppinga, norðan Vatnajökuls undanfarna mánuði og dýpt þeirra benda til þess að að eldgos gæti verið í aðsigi á svæðinu. Eins og við greindum frá í fréttum okkar í gærkvöldi þá hefur eftirlit með svæðinu verið aukið og jarðvísindamenn fylgjast grannt með því en skjálftarnir þykja mjög óvenjulegir. Páll Einarsson, jarðfræðingur sagði í samtali við Fréttastofu í gærkvöldi að ómögulegt væri að segja til um hvar hugsanlegt gos gæti brotist út á svæðinu, það gæti allt eins brotist út í Öskju, nú eða í Kverkfjöllum eða einhvers staðar allt annars staðar. Og það eru fleiri eldstöðvar að gera sig líklegar til að gjósa á næstunni. Í samtali við Bítið á Bylgjunni í morgun sagði Páll að Hekla væri tilbúin til og gæti gosið hvenær sem er innan fárra ára, Grímsvötn væru að fylla kvikuna en væru líklega ekki alveg tilbúin enn og að Katla væri búin að vera að gera sig gildandi um þónokkuð skeið.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Þurfi að sannfæra flokkinn Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Fleiri fréttir Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Hitnar undir feldi Péturs Sjá meira