Syndug hjörtu á Rauðasandi 23. júlí 2007 11:43
Laugardaginn 28. júlí verður efnt til menningarkvölds að Saurbæ á Rauðasandi undir yfirskriftinni: Við klukknahljóm syndugra hjarta. Tilefnið er ný útgáfa Bókaútgáfunnar Bjarts á skáldsögunni Svartfugli eftir Gunnar Gunnarsson. Gunnar var um fertugt þegar hann skrifaði söguna un Eyjólf kapelán og ástríðuglæpi Bjarna og Steinunnar á Sjöundá. Bókin kom út hjá Gyldendal í Danmörku haustið 1929 og vakti strax mikla athygli. Sagan er stundum sögð vera fyrsta alvöru íslenska glæpasagan þar sem réttarrannsókn spinnur söguþráðinn. Dagskráin verður flutt í því stórbrotna landslagi sem voru rammi þeirra dramatísku atburða er Gunnar notar sem efnivið í söguna, undir stórskornum fjöllum og við rauðgullinn skeljasand. Hún hefst kl. 20.00 með erindi Gunnars Björns Gunnarssonar, afkomanda skáldsins, um Svartfugl. Síðan munu leikararnir Jón Hjartarson, Þorsteinn Gunnarsson og Valgerður Dan leiklesa brot úr bókinni og Áshildur Haraldsdóttir leikur flautuverkið Lethe eftir Atla Heimi Sveinsson. Að lokum verður séra Sveinn Valgeirsson með hugvekju í Saurbæjarkirkju. Boðið verður upp á léttar veitingar að lokinni dagskrá og er áhugasömum bent á gott tjaldsvæði á staðnum. Dagskráin er samvinnuverkefni Bókaútgáfunnar Bjarts, Gunnarsstofnunar og Ferðafélags Íslands sem verður með gönguferð um svæðið frá 27. til 30. júlí.
Mest lesið Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum Lífið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið „Auðveldara hér að vera bara eins og maður er“ Tíska og hönnun Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Lífið Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Lífið Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Grafinn í sand í sólarhring Lífið Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Fleiri fréttir Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins „Ógeðslega flókinn tími í lífi fólks“ Ætla valdasjúkir tækifærissinnar að steypa okkur í glötun? Hvað veistu um... flugvelli? Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lygilega erfið þrautabraut Nemendur í Seljaskóla graffa 56 metra listaverk við skólann Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Kvikmyndagerðarmenn framtíðarinnar í fíling Frumsamin kórverk í heimabruggi bílskúrsbands Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Naglbíts-barn á leiðinni Sólveig Anna og Marta María léku á als oddi og Óli tottaði vindil Sjá meira