Lélegt sílamáfsvarp vísbending um hrun í sandsílastofni og slaka nýliðun þorsks 20. júlí 2007 18:54
Flótti sílamáfs frá Reykjavík er vísbending um hrun í sandsílastofninum. Á tveimur árum hefur varppörum fækkað úr 37 þúsund niður í 7 þúsund. Fuglafræðingar telja jafnvel samhengi milli fjölda sílamáva við landið og nýliðunar í þorski. Þótt sílamáfurinn sé fráleitt vinsæll í borginni þá ætti fólk líklegast frekar að fagna honum en ólmast gegn honum því fjöldinn er í réttu hlutfalli við nýliðun í þorski ef marka má skoðun sumra náttúrufræðinga. Fuglafræðingur sem Stöð 2 ræddi við í dag segir að sandsíli sé undirstaðan í fæðu sílamáfs á svipaðan hátt og hjá þorski. Því sé hrun í stofni sandsílis jafn afdrifaríkt fyrir sílamáfinn og þorskinn sem er ein mikilvægasta uppistaðan í fiskvinnslu á Íslandi. Góður árangur í varpi sílamáfs sé þannig sterk vísbending um að þorskur hafi nóg æti. Fjöldi fugla við strendur Íslands lifir að verulegu leyti á sandsíli. Slæm afkoma sandsílis hefur valdið áföllum í varpi hjá lunda í Eyjum og hjá kríu á nokkrum stöðum á landinu. Gunnar Þór Hallgrímsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Reykjaness, var við talningar og rannsóknir á sílamáfi í morgun en hann segir að fuglinn sé nú farinn af Reykjavíkurtjörn og frá læknum í Hafnarfirði. Gunnar segir ljóst að fuglinn hafi komist í æti því hann líti ekki lengur við brauði frá mannfólkinu. Það eru vissulega góð tíðindi að sandsíli sé farið að finnast í kviði unga í varplandi sílamáfs. Gunnar Þór óttast samt að þetta sandsílaskot sé ekki varanlegt og að varpið í ár sé eins og í fyrra, varla svipur hjá sjón. Sílamáfur er farfugl en hann dvelur við strendur Pýreneaskaga og í Afríku á veturna.
Mest lesið TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Erlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri fréttir Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík Sjá meira