Lá í tuttugu mínútur á réttum kili áður en henni hvolfdi 17. júlí 2007 19:44
TF Sif var dregin til lands í nótt og flutt í flugskýli við Reykjavíkurflugvöll til rannsóknar. Vonast er til að upplýsingar úr flugrita hennar varpi ljósi á atburðinn. Sjónarvottar segja að þyrlan hafi verið í um tuttugu mínútur á réttum kili í sjónum áður en henni hvolfdi. Rætt var um í gær að þyrlan hefði misst afl í lítilli hæð en Landhelgisgæslan vildi ekki staðfesta það í dag enda ekki leyfilegt sökum rannsóknarinnar. Áhöfnin gat skotið út neyðarflotum og lent mjúklega en þyrlunni hvolfdi hinsvegar um fimmtán til tuttugu mínútum eftir að hún var lent að sögn sjónarvotta. Fjórir menn voru um borð, þeir Sigurður Heiðar Wium flugstjóri, Jens Þór Sigurðsson flugmaður, Torben J. Lund stýrimaður og Daníel Hjaltason flugvirki. Mikil mildi var að ekki var verið að hífa neinn um borð í þyrluna þegar óhappið varð. Þrír bátar voru í sjónum og kom áhöfnin boðum til þeirra áður en hún lenti, það voru Björgunarskipið Einar Sigurjónsson, frá björgunarsveit Hafnarfjarðar, sem bjargaði áhöfninni úr sjónum, báturinn Fiskiklettur og Gúmbjörgunarbátur. Fjöldi fólks úr Hafnarfirði fylgdist með frá ströndinni allt frá Hvaleyrarholti til Straumsvíkur og lögreglan þurfti að biðja fólk frá að hverfa til að björgunarmenn hefðu vinnufrið. TF Sif var tryggð að fullu en talið er að verðmæti hennar nemi einum milljarði króna. Dómsmálaráðherra tók á á móti áhöfn þyrlunnar í Straumsvík um níuleytið í gærkvöldi. Björgunarstörfin í nótt fóru þannig fram að byrjað var á að setja sex lyftibelgi á vélina til að tryggja að hún flyti. Þá var hljóðritinn tekinn úr vélinni og flakið myndað að beiðni Rannsóknarnefndar flugslysa. Kafarar aðstoðuðu við að taka þyrluspaðana af vélinni til að hægt væri að snúa henni í sjónum og dýpkunarprammi með krana úr Hafnarfirði sem kom á staðinn um hálf ellefu í gærkvöld og festi taug við snúningsásinn á þakinu dró þyrluna til hafnar í Hafnarfirði seint í nótt. Þar var hún hífð upp á bíl og flutt í húsnæði á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa. Þyrlan kom til landsins árið 1985. Hún hefur áður lent í óhappi en henni var nauðlent á Snæfellsnesi fyrir rúmum sex árum þegar hún flauginn í loftókyrrð sem breytti stöðugleika hennar þannig að eitt eða fleiri blöð þyrlunnar komu við stélflötinn.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Sjá meira