Sviptur leyfi til að ávísa róandi og örvandi lyfjum 17. júlí 2007 18:43
Heilbrigðisráðuneytið hefur svipt þekktan geðlækni leyfi til að ávísa róandi og örvandi lyfjum. Leyfissviptingin er að tillögu landlæknis en embættinu hefur borist fjöldi ábendinga um að læknirinn ávísi ekki lyfjum samkvæmt læknisfræðilegum aðferðum. Heilbrigðisráðuneytið kvað upp úrskurð sinn í byrjun júlí og var hann birtur í lögbirtingarblaðinu 13. júlí síðastliðinn. Þar segir að ráðuneytið hafi svipt Magnús Skúlason geðlækni að tillögu landæknis, leyfi til að ávísa róandi og örvandi lyfjum. Matthías Halldórsson landlæknir vildi ekki tjá sig um málið við fréttastofu en sagði embættinu hafa borist fjöldi ábendinga um að geðlæknirinn ávísaði róandi og örvandi lyfjum sem væru ekki eftir hefðbundnum læknisfræðilegum aðferðum. Fréttaskýringaþátturinn Kompás og Fréttastofa Stöðvar 2 hefur fjallað um mál sem tengjast lyfjaávísunum geðlæknisins á morfínlyfinu Contalgeni og örvandi lyfinu Rítalíni til fíkniefnaneytenda sem eru langt leiddir í fíkniefnaneyslu. Í mars síðastliðnum sagði móðir ungrar stúlku sem var í mikilli fíkniefnaneyslu í viðtali við fréttastofu stötðvar 2 að umræddur geðlæknir hefði skrifað upp á of stóran skammt af rítalíni fyrir dóttur sína. Móðirin leitaði til landlæknis vegna málsins og í framhaldi af því var hafin rannsókn á lyfjaávísunum læknisins. Geðlæknirinn sagði í samtali við fréttastofu að úrskurður ráðuneytisins byggðist hvorki á læknisfræðilegum forsendum né rökum. Hann vildi ekki tjá sig við fréttastofu um málið að svo stöddu en sagðist hafa óskað eftir rökstuðningi frá ráðuneytinu sem hann biði eftir að fá í hendur.
Mest lesið Banaslys á Hvolsvelli Innlent Íslenskur maður lést í Úkraínu Innlent Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Innlent Vinum hans ekki litist á blikuna Innlent Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Innlent Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Innlent Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Innlent Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Innlent Tekur stóra skammta af magnýl og leiðist að hreyfa sig Erlent Fyrsta fórnarlambið nafngreint Erlent Fleiri fréttir „Miður að bensínhákum sé umbunað“ Íslenskur maður lést í Úkraínu Nýársbarnið á Suðurlandi býr á Eyrarbakka Réttindalaus og keyrði á kyrrstæðan lögreglubíl Kostnaður vegna veikinda nemur milljörðum Verðlækkanir á bensíni og áramótaheit landsmanna 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Fjögur vilja tvö efstu hjá Viðreisn Kristín vill fyrsta sætið Allt sem þú þarft að vita um nýja kílómetragjaldið Þremur þjófum vísað úr landi Funda í janúar í kjaraviðræðum flugstétta Hlutfall fínasta svifryksins áberandi hátt á nýársnótt Telur nær öruggt að fleiri hundar muni týnast Dæmi um að fólk hafi flúið upp í sveit Þurfi að sannfæra flokkinn Sex tíma leikskóladvöl nú gjaldfrjáls í Hafnarfirði Neytendur eigi meira inni eftir eldsneytislækkanir á nýju ári Hafna beiðni manns sem braut kynferðislega á stjúpdóttur Banaslys á Hvolsvelli Sumarbústaðaeigendur geti skotið upp flugeldum annars staðar Karólína Helga býður sig fram gegn sitjandi oddvita Mikill meirihluti vill lögfesta rétt barna til leikskólavistar Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Eldur í bíl við Breiðhellu Vinum hans ekki litist á blikuna Pétur verið lengur en hún í stjórnmálum Fluttur á sjúkrahús eftir slys í Hrútafirði Pétur fer á móti borgarstjóra og vill fyrsta sætið í Reykjavík Kveður klettinn í lífi sínu eftir skyndileg veikindi Sjá meira