Áhöfn TF-SIF má ekki ræða tildrög slyssins 17. júlí 2007 12:32
Áhöfnin á TF SIF má ekki ræða við fjölmiðla þar sem rannsókn stendur yfir á orsökum þess að þyrlan brotlenti í sjónum skammt undan Straumsvík. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræddi við áhöfnina í gær og sagði hana hafa staðið sig með prýði. Þyrlan var á æfingu með björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar þegar hún missti skyndilega afl. Slysið varð laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Rætt var um í gær að þyrlan hefði misst afl í lítilli hæð en Landhelgisgæslan vildi ekki staðfesta það í dag enda ekki leyfilegt sökum rannsóknarinnar. Áhöfnin skaut út neyðarflotum og lenti því mjúklega á sjónum. Þar hvolfdi henni hins vegar. Fjórir menn voru um borð, þeir Sigurður Heiðar Wium flugstjóri, Jens Þór Sigurðsson flugmaður, Torben J. Lund stýrimaður og Daníel Hjaltason flugvirki. Mikil mildi var að ekki var verið að hífa neinn um borð í þyrluna þegar óhappið varð. Björgunarskipið Einar Sigurjónsson, frá björgunarsveit Hafnarfjarðar, var þar skammt frá og bjargaði þeim upp úr sjónum. Fjöldi fólks úr Hafnarfirði fylgdist með frá ströndinni allt frá Hvaleyrarholti til Straumsvíkur. Lögreglan þurfti að biðja fólk frá að hverfa til að það torveldaði ekki aðgerðir. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar flugu yfir svæðið til að kanna aðstæður í gærkvöldi og tóku á móti áhöfninni þegar komið var með hana að landi. TF Sif var tryggð að fullu en talið er að verðmæti hennar nemi einum milljarði króna.Þyrlan var dregin til HafnarfjarðarÁhöfnin og Georg Lárusson, forstjori Landhelgisgæslunnar eftir komuna í land í Straumsvíkurhöfn.MYND/Vísir.isBjörgunarstörfin í nótt fóru þannig fram að byrjað var á að setja lyftibelgi á vélina, segir í tilynningu frá Landhelgisgæslunni. Hver belgur ber 300 kg. og voru settir sex slíkir belgir á vélina til að tryggja að hún flyti. Að því loknu var hljóðritinn tekinn úr vélinni og flakið myndað að beiðni Rannsóknarnefndar flugslysa. Þar næst fóru kafarar niður undir vélina og tóku þyrluspaðana af henni og komu böndum á ásinn sem heldur spöðunum (rotorhead -þyrilkollur). Þá var kominn prammi með krana að vélinni og var hann notaður til að hífa vélina upp til að rétta hana af. Það tókst með ágætum. Ákveðið var að taka vélina ekki um borð í prammann til að forðast skemmdir. Þar næst var vélin dregin upp að bryggju í Hafnarfirði. Þar var hún hífð upp á bíl og flutt í húsnæði á vegum Rannsóknarnefndar flugslysa. Landhelgisgæslan segist vilja koma á framfæri þakklæti til þeirra sem tóku þátt í björgunaraðgerðum en það starf hafi gengið með eindæmum vel.Meðal þeirra sem komu að björgunaraðgerðum ásamt köfurum og öðrum starfsmönnum Landhelgisgæslunnar voru kafarar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, björgunarsveitarmenn frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu, lögreglan og Köfunarþjónusta Árna Kópssonar.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira