Bók um Jón Ásgeir gefin út í Bretlandi 16. júlí 2007 23:15
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, starfandi stjórnarformanni Baugs, er lýst sem glaumgosa sem sé að kaupa upp Bretland í nýrri bók sem komin er í forsölu. Bókin er gefin út í óþökk Jóns Ásgeirs og ber heitið Sex, Lies and Supermarkets eða kynlíf, lygar og stórmarkaðir. Bókin hefur enn ekki verið gefin út en hafin er þó forsala á henni á vef Amazon og kostar hún rúmar fjórtán hundruð krónur. Þeir Jonathan Edwards og Ian Griffiths, höfundar bókarinnar halda því fram að velgengi Baugs á erlendum vettvangi hafi orðið til þess að íslenskum stjórnvöldum fannst þau knúin til að sjá til þess að gefnar yrðu út ákærur á hendur fyrirtækinu. Þetta kemur fram í umsögn sem birt hefur verið um bókina og jafnframt að í bókinni sé sagt frá upphafi Baugsmálsins. Höfundarnir fara yfir málaferlin og segja frá göllum á rannsókn málsins, hvernig Baugi tókst að kljást við þá erfiðleika sem fylgdu dómsmálinu og hvernig Jón Ásgeir fékk að lokum uppreins æru. Miðað við umsögnina virðast höfundar líta svo á sem málinu sé lokið þó enn eigi eftir að taka það fyrir í Hæstarétti. Í bókinni sem ber heitið Sex, Lies and Supermarkets eða kynlíf, lygar og stórmarkaðir er Jóni Ásgeiri er lýst sem milljónamæringi sem oft hafi verið nefndur í tengslum við svik og leynimakk. Farið er yfir velgengni Baugs og yfirtöku þess á þekktum verslunarkeðjum eins og Oasis, Iceland og Hamleys. Jón Ásgeir sé glaumgosi sem sé að kaupa upp allt Bretland. Bókin er skrifuð í óþökk Jóns Ásgeirs og vill hvorki hann né talsmaður hans tjá sig um efni bókarinnar. Fréttastofu er ekki kunnugt um að fengist hafi útgefandi fyrir bókina hér á landi.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Fleiri fréttir Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Sjá meira