Gagnrýna að fyrrverandi starfsmaður Hafró meti rannsóknir 15. júlí 2007 12:53
Það orkar tvímælis að sjávarútvegsráðherra hafi fengið einstakling sem starfað hefur hjá Hafró til að stýra nefnd sem meðal annars á að benda á hvaða rannsóknir á þorskstofninum skorti. Þetta segir reynslumikill skipstjóri sem segir ljóst að ráðgjöf stofnunarinnar hafi ekki skilað sér. Sjávarútvegs kynnti fyrir rúmri viku kvóta næsta fiskveiðiárs og hefur þorskkvóti verið verulega skertur. Kristinn Gestsson hefur verið skipstjóri í tæpa þrjá áratugi. Hann telur að þau tæki sem Hafrannsóknarstofnun hafi til að meta stærð fiskistofnanna gefi ekki nógu góða mynd af stærð stofnanna og að mun meira sé af fiski í sjónum en Hafró telur. Á sama tíma og skerðing þorskkvóta var kynnt tilkynnti sjávarútvegsráðherra að ákveðið hefði verið að setja á laggirnar starfshóp sem hefur meðal annars það markmið að að benda á hvaða rannsóknir skorti á þorskstofninum. Nefndin mun starfa undir forystu Guðrúnar Marteinsdóttur, prófessors í fiskifræði við Háskóla Íslands, en hún starfaði á tímabili hjá Hafró. Kristinn segir að þar sem flestar rannsóknir á stofninum séu gerðar hjá Hafró þá hefði verði æskilegra að fá einhvern sem ekki hefur starfað þar til að stýra hópnum. Guðrún segir ekkert óeðlilegt við að hún stýri nefndinni þar sem hlutverk hennar sé að taka sama yfirlit yfir rannsóknir sem eru í gangi og þá ekkert frekar rannsóknir á vegum Hafró heldur en annarra aðila.
Mest lesið Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Pútín lætur sér fátt um finnast Erlent Fleiri fréttir Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Sjá meira