Iðnaðarráðherra ekki hrifinn af olíuhreinsistöð 14. júlí 2007 12:21
Iðnaðarráðherra er ekki hrifinn af þeim hugmyndum sem fram hafa komið um að setja niður olíuhreinsistöð á Vestfjörðum. Bæjarstjórinn á Ísafirði vill að kannað verði til þrautar hvort þessi iðnaður sé heppilegur. Olíhreinisstöð á Vestfjörðum getur skapað rösklega fimm hundruð störf sem væru án efa kærkomin á tímum samdráttar í aflaheimildum. Í vor tilkynntu forvígsmenn Kambs á Flateyri að fiskvinnslu og útgerð yrði hætt og Héraðsdómur Vestfjarða samþykkti nýlega beiðni stjórnar rækjuverksmiðjunnar Miðfells á Ísafirði um að fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þarna hverfa hátt á annað hundrað störf. Sveitastjórnarmenn á Vestfjörðum fóru fyrir fáeinum dögum til Evrópu að skoða olíuhreinsistöðvar með það í huga að kanna með hvaða hætti slíkur iðnaður gæti leyst vanda Vestfirðinga. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, telur fáránlegt að hafna með öllu þessum kosti án þess að kannað sé ofan í kjölinn hvort hann henti íslenskum aðstæðum. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra segist ekki heillaður af þessum iðnaði fyrir íslenskar aðstæður. Hann segir að þessar hugmyndir hafi áður komið fram hjá nákvæmlega sömu aðilum fyrir kosningarnar 1999 og þá hafi þær einfaldlega gufað upp.
Mest lesið Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Baldur til Eyja Innlent Seltjarnarnes heldur áfram að tapa Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur Viðskipti innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Innlent „Það er mikið verið að suða“ Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira