Hæl- og ristarbrotnaði þegar hann fór út um glugga Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 13. júlí 2007 18:56
Nítján ára íslenskur karlmaður, sem var undir áhrifum ofskynjunarsveppa, hæl- og ristarbrotnaði á báðum fótum þegar hann fór út um glugga á annarri hæð hótels í Amsterdam. Ungi maðurinn er nú á sjúkrahúsi í Hollandi en faðir hans vonast til að hægt verði að flytja hann heim til Íslands um helgina. Ungi maðurinn var staddur í Amsterdam í Hollandi ásamt félaga sínum en þar ætluðu þeir að dvelja í viku. Síðastliðinn föstudag neyttu félagarnir sveppa sem þeir keyptu í verslun í borginni en löglegt er þar að selja ferska sveppi. Ungu mennirnir neyttu sveppana á hótelherbergi sínu. Fljótlega fór öðrum þeirra að líða illa og reyndi hann að kasta upp. Hann fékk ofskynjanir og fannst einhver vera að elta sig -en í miðri vímunni kastaði hann sér út um glugga hótelherberginu sem var á annarri hæð. Eftir að hann lenti á stéttinni reyndi hann að skríða aftur inn á hótelið en gat það ekki sökum áverka. Maðurinn hæl og ristarbrotnaði á báðum fótum og þurfti að gangast undir aðgerðir á sjúkrahúsi í borginni. Faðir unga mannsins flaug út til að vera hjá honum og er hann nú að reyna að fá hann fluttan heim. Flytja þarf hann á sjúkrabörum og þarf annað hvort læknir eða hjúkrunarfræðingur að vera með í för. Í samtali við fréttastofu sagði faðir mannsins að læknar telji að nái ekki fullum krafti á ný í annan fótinn. Ungi maðurinn þarf hann að gangast undir þrjár til fjórar aðgerðir til viðbótar og er faðir hans að reyna að fá hann fluttan heim sem fyrst svo hægt sé að framkvæma þær á Íslandi. Þegar grunur er um að áfengi eða vímuefna hafi verið neytt þegar slys geta tryggingar fallið úr gildi. Faðir unga mannsins sagði í samtali við fréttastofu að hann hafi því sjálfur lagt til tryggingar til að koma syni sínum heim og vonast til að þeir feðgar komist í flug á sunnudaginn. Fréttavefur hollenska blaðsins De Volkskrant segir þetta þriðja atvikið í Amsterdam sem rekja megi beint til ferskra ofskynjunarsveppa á síðastliðnum fimm mánuðum. Í mars lét 17 ára stelpa lífið eftir að hafa stokkið fram af þaki vísindasafns í sveppavímu. Í júní missti breskur ferðamaður stjórn á sér eftir neyslu sveppa, hann gekk berserksgang á hótelherbergi sínu.
Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira