Innlent

Gáfu Krabbameinsfélaginu 1,2 milljónir króna

Frá afhendingunni í morgun.
Frá afhendingunni í morgun. MYND/Engey

Konur úr Lionsklúbbnum Engey í Reykjavík afhentu Krabbameinsfélaginu í morgun 1,2 milljónir króna til kaupa á brjóstaómsjá. Tækinu er ætlað til noktunar við leit að brjóstakrabbameini í leitarstöð Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíði í Reykjavík. Um er ræða peninga sem söfnuðust í styrktartónleikum sem fram fóru í Salnum í Kópavogi í síðastliðnum marsmánuði.

Tækið mun meðal annars nýtast við stafrænar röntgenmyndir við leit að brjóstakrabbameini. Áður hafa konur úr Lionsklúbbnum Engey styrkt Krabbameinsfélagið með sölu á pennum og merkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×