Engin lausn í sjónmáli í deilu flugmanna og Icelandair 9. júlí 2007 15:52 Flugmenn ósáttir við að fá ekki störf hjá dótturfélagi Icelandair. MYND/Brink
Engin sátt liggur fyrir í deilu flugmanna og Icelandair í tengslum við uppsagnir og meint brot á starfsréttindum flugmanna. Forráðamenn fyrirtækisins funduðu með fulltrúum flugmanna í dag en þeim fundi lauk fyrir skemmstu án niðurstöðu. Engir aðrir fundir hafa verið boðaðir en flugmenn hafa boðað til félagsfundar í kvöld. „Við munum ræða framhaldið á fundinum í kvöld," sagði Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, í samtali við Vísi. „Við erum reiðubúnir til að leysa þessa deilu sem fyrst." Icelandair hefur tilkynnt uppsagnir á nokkrum íslenskum flugmönnum í haust en á sama tíma er félag tengt Icelandair í Lettlandi að ráða til sín erlenda flugmenn. Þetta telja íslenskir atvinnuflugmenn brot á samningi þeirra við fyrirtækið. Samkvæmt honum eiga flugmenn Icelandair forgang á vinnu hjá dótturfyrirtækjum félagsins. Á þetta sjónarmið hafa forráðamenn Icelandair hins vegar ekki viljað fallast. Í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í dag sagði Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair og Icelandair Group, að félagið í Lettlandi væri algerlega óskylt rekstri Icelandair. Því ættu samningar sem Icelandair gerir við sitt starfsfólk ekki að gilda þar. Fundur Félags íslenskra atvinnuflugmanna verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík og hefst hann klukkan átta í kvöld.
Mest lesið Rodríguez réttir Bandaríkjunum sáttarhönd Erlent Jón Gnarr biðst afsökunar Innlent „Nú er nóg komið“ Erlent Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Innlent „Ég neyðist til að segja það hreint út“ Erlent Margrét Löf sættir sig ekki við sextán ára dóm Innlent Flugsamgöngur lamaðar og þúsundir sitja fastar Erlent Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Innlent Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent Tíu sakfelld fyrir að halda því fram að forsetafrúin sé trans Erlent Fleiri fréttir Margrét Löf sættir sig ekki við sextán ára dóm Vara við gróðureldum vegna flugelda Bæjarstjórinn vill leiða Framsókn í Hafnarfirði Ekki endilega betri heimur fyrir Ísland Enn kvikusöfnun og landris og líkur á eldgosi Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Örn sækist eftir fjórða sæti í Hafnarfirði Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Jón Gnarr biðst afsökunar Dýpra samtal og samvinna við Evrópusambandið „lykilbreyta“ „Ísland stendur þétt með vinum sínum“ Guðbjörg Oddný sækist eftir öðru sætinu Tveir ökumenn reyndust dvelja ólöglega á landinu Sauðburður er hafinn í Helgafellssveit Borgarstjórinn segist heita Heiða Smáríkið íhugar málsókn vegna aðgerða lögreglu Gæti orðið bylting fyrir konur á breytingaskeiði Er Miðflokkurinn hægriflokkur? „Flestum þykir vænt um bóndann“, segir formaður Bændasamtakanna Furða sig á viðbrögðum Þorgerðar sem dregur í land Útilokar ekki borgarastyrjöld Goddur er látinn Rauði krossinn veitti íbúum skjól eftir bruna Hverju skipta árásirnar á Venesúela í stóru myndinni? Lögregla lokaði áfengissölustað Gönguleið yfir Elliðaár í stað hitaveitustokksins „Viðbrögð utanríkisráðherra eru til skammar“ Þessi bjóða sig fram fyrir Samfylkinguna í Reykjavík „Allavega er þessi einræðisherra farinn“ Nafn konunnar sem lést á Hvolsvelli Sjá meira
Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent
Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Erlent