Markvisst unnið að því að útrýma mávi af tjörninni 6. júlí 2007 14:23 Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hvetur fólk til að draga úr brauðgjöfum á tjörninni í júní og júlí. Mynd/ Visir.is
Andavarp á tjörninni hefur ekki tekist vel í ár, að sögn Guðmundar B. Friðrikssonar, skrifstofustjóra hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar. Fáir ungar hafa komist á legg. Ástæðurnar eru þær að lítið er af æti við tjörnina og að mávurinn hefur étið ungana. Umhverfissvið Reykjavíkurborgar ætlar að setja upp veggspjöld á næstu dögum á ýmsum opinberum stöðum í Reykjavík með skilaboðum um að draga megi úr uppgangi máva með bættri umgengi og færri brauðgjöfum. Guðmundur ráðleggur fólki að draga úr brauðgjöf við Tjörnina í júní og júlí á meðan andarungar eru að komast á legg. Hann segir að ungarnir borði skordýr sem lifi í tjörninni en ekki brauð. Bættur frágangur á úrgangi skipti einnig miklu máli ef sporna eigi við ágangi máva. Að sögn Guðmundar ætti enginn að skilja eftir matarleifar á víðavangi. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mun jafnframt senda bréf til veitinga- og skyndibitastaða í borginni þar sem meðal annars eru ábendingar um að gæta þess að hafa ruslagáma og tunnur ævinlega lokaða og að úrgangur liggi ekki við ruslagáma á lóð fyrirtækja. Borgaryfirvöld hafa einnig unnið markvisst að því að fækka mávi á tjörninni með skotveiði, en því fylgir alltaf sú hætta að annað fuglalíf sé truflað, segir Guðmundur.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Erlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg Sjá meira