Hamar vísar ásökunum á bug 5. júlí 2007 15:10 MYND/Vilhelm
Verktakafyrirtækið Hamar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ásökunum Rafiðnaðarsambands Íslands er vísað á bug og þær sagðar rangar. Rafiðnaðarsambandið hefur sagt að hjá Hamri starfi ófaglærðir verkamenn í störfum þar sem krafist sé fagþekkingar. Þá segir sambandið að kjör starfsmannanna séu ófullnægjandi. Hamar bendir á að náið samband hafi verið haft við Starfsgreinasamband Austurlands, AFL og Vinnumálastofnun. Í yfirlýsingunni er sagt að erlendir rafiðnaðarmenn Hamars hafi einungis starfað undir leiðsögn íslenskra rafvirkjameistara auk þess sem kjör þeirra séu í samræmi við íslensk lög og reglur. Þá segir að allir starfsmennirnir hafi verið tilkynntir til Vinnumálastofnunar. „Erlendir starfsmenn á vegum Hamars hafa einungis unnið sem aðstoðarmenn rafvirkja með full starfsréttindi og undir leiðsögn íslenskra rafvirkjameistara," segir í yfirlýsingunni. „Gögn um starfsmenntun erlendu rafiðnaðarmannanna hafa verið lögð inn hjá menntamálaráðuneytinu til viðurkenningar. Vinna við útfyllingu umsókna ásamt útvegun nauðsynlegra gagna, s.s. prófskírteina, vottorða um starfsreynslu, starfsþjálfun og starfsréttindi í heimalandi mannanna, hefur staðið yfir undanfarið í samvinnu við ráðuneytið." Fyrirtækið segir að því hafi verið ranglega haldið fram í fjölmiðlum að mat ráðuneytisins á starfsmenntun erlendu rafiðnaðarmannanna liggi þegar fyrir. „Hið rétta er að það mun verða á næstu dögum." Þá segir að Hamar kappkosti að greiða samkeppnishæf laun. „Fyrirtækið hefur ávallt tryggt öllum starfsmönnum sínum kaup og kjör í samræmi við íslensk lög og reglur. Einnig hefur fyrirtækið séð til þess að undirverktakar fengju greitt samkvæmt lögum og reglum," segir að lokum og því bætt við að Hamar hafi haft fullt samráð við Vinnumálastofnun um kaup og kjör erlendra starfsmanna undirverktaka.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira