Heimili fyrir heimilislausa opnað á Njálsgötu 4. júlí 2007 17:41 Gistiheimilið á Njálsgötu.
Velferðarráð Reykjavíkurborgar ákvað formlega í dag að hefja rekstur heimilis fyrir heimilislausa á Njálsgötu í Reykjavík. Ákveðið var að koma til móts við gagnrýnisraddir íbúa á Njálsgötu með því að hafa heimilismenn 8 en ekki 10 eins og áður var gert ráð fyrir. Þá er gert ráð fyrir öflugu samstarfi við lögreglu um vakt í hverfinu, að skapaður verði grundvöllur fyrir reglulegri samvinnu við nágranna heimilisins og að staðsetning heimilisins verði endurskoðuð að ári liðnu með tilliti til reynslunnar. „Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum eru skiptar skoðanir meðal íbúa við Njálsgötu og í næsta nágrenni um staðsetningu heimilisins. Lengi var leitað að hentugu húsnæði undir starfsemina áður en ákveðið var að festa kaup á húseigninni við Njálsgötu. Tvenn rök vógu þyngst í vali á húseigninni. Annars vegar að húseignin er miðsvæðis í bænum og hins vegar að í húsnæðinu var áður rekið gistiheimili þannig að húsið hefur verið innréttað sem slíkt og hentar því starfseminni vel. Brýn þörf er fyrir húsnæði fyrir heimilislausa í borginni. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur þegar sent út bréf til íbúa við Njálsgötu og næsta nágrennis þar sem ákvörðunin er kynnt nánar. Velferðarráð vonar að sátt geti ríkt um rekstur heimilis fyrir heimilislausa við Njálsgötu," segir í fréttatilkynningu frá Velferðasviði Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Innlent Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Innlent Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Innlent Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Erlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Innlent Aftur í skólastjórastólinn Innlent Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Innlent Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Innlent Fleiri fréttir Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Sjá meira
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent
Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni Erlent