Sólskin og sumar á 75 ára afmæli Verkó 30. júní 2007 18:30
Verkóbúar slógu upp mikilli veislu í dag vegna sjötíu og fimm ára afmælis fyrstu verkamannabústaðanna í Reykjavík. Fyrstu verkamannabústaðirnir sem byggðir voru á Íslandi voru við Hringbraut í Reykjavík, reistir af Byggingafélagi alþýðu eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Í afmælið í dag var mættur einn af frumbyggjunum sem var borinn í nýreistan verkamannabústaðinn aðeins sjö daga gamall fyrir 75 árum. Foreldrar Haralds Sigurðssonar voru þeir fyrstu sem fluttu inn í Verkó. Haraldur sagði að það hefði verið stórkostlegt að alast upp í Verkó og einelti hefði ekki þekkst á þessum árum. Hátíðahöldin í dag fóru fram í blíðskaparveðri og risu þau hæst með skrúðgöngu frá horni Ásvallagötu og Hofsvallagötu undir gjallandi blæstri og trumbuslætti Lúðrasveitar verkalýðsins. Íbúar og velunnarar Verkó gengu umhverfis bústaðina með viðkomu hjá styttu Héðins Valdimarssonar en hann átti drjúgan þátt í að þessi hús risu. Verkamannabústaðirnir eru tvílyftir og mynda kærkomið skjól umhverfis leikvöll og sameiginlega grasflöt. Afmælisgestirnir voru auðvitað margir hverjir í yngri kantinum. Í öllum alvöru afmælum eru leikir og börn á öllum aldri létu ekki sitt eftir liggja í sólskini og skjóli frá sjötíu og fimm ára gömlu steinhúsum.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira