Risastórt skemmtiferðaskip í Sundahöfn 30. júní 2007 12:59
Stærsta skemmtiferðaskip sem nokkru sinni hefur komið til Íslands lagðist að bryggju í Sundahöfn núna í morgun. Jón Örn Guðbjartsson skoðaði skipið. Skemmtiferðaskipið Grand Princess er engin smásmíð, skipið er alls 108.806 brúttólestir og er það tuttugasta og þriðja í röðinni yfir stærstu skemmtiferðaskipin í heiminum. Farþegafjöldi er um 3.100 og áhöfn telur um ellefu hundruð manns. Á Grand Princess eru engar kojur og klefa því skipið hefur 710 herbergi sem hafa meira að segja einkasvalir auk þess sem heilt dekk hefur einungis glæsisvítur fyrir farþega. Um borð er kapella þar sem skipstjórinn hefur í nógu að snúast við að gefa saman pör á ferðalögum um heimshöfin. Af öðrum áhugaverðum afþreyingarkostum um borð má nefna spilavíti, pútt golfvöll með níu holum, listasafn, íþróttavelli, verslanir, bari og veitingastaði þar sem reiddar eru fram kræsingar frá öllum heimshornum. Ef menn vilja bara spóka sig á dekkinu þá er göngufærið prýðisgott, skipið er 290 metra langt eða eins og þrír knattspyrnuvellir. Það ristir 8 metra. Til samanburðar má geta þess að Queen Elisabeth sem var hér á dögunum og mörgum þótti tignarlegt, er aðeins um 70.000 brúttólestir. Þetta mikla skip er í eigu Princess Cruises, sem er dótturfélag Carnival Cruises sem er stærsta skemmtiferðaskipafélag í heimi. Skipið var tekið í notkun 1998.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira