Óvíst hvort tekið verði við flóttamönnum á Möltu 29. júní 2007 19:12
Ekki er vitað hvað verður um tuttugu og einn flóttamann frá Afríku sem íslenskur skipstjóri ber nú ábyrgð á. Hópurinn er um borð í íslenskum togara sem siglir til Möltu en fólkið fannst í flotkvíum sem skipið dregur. Stjórnvöld á Möltu hafa ekki viljað gefa nein loforð um að þau taki við hópnum. Flóttamennirnir fundust í gær í flotkvíum sem togarinn Eyborg frá Hrísey var með í eftirdragi. Togarinn er staddur á Miðjarahafinu en hann tók við flotkvíunum skammt frá landhelgi Líbýu af öðrum togara. Skipið hefur verið á þeim slóðum síðustu tvö árin. Skipstjóri togarans er íslenskur en auk hans eru tveir Rúmenar og sex Indónesíumenn í áhöfninni. Skipverjar urðu varir við fólkið í gær. Útgerðin hafði samband við utanríkisráðuneytið sem bað áhöfnina að koma fólkinu strax í björgunarbáta og var það tekið um borð í skipið í dag. Einn úr hópi laumufarþega, eþíópísk kona, mun vera látinn en öðrum heilsast vel. Um er að ræða 17 Eþíópíumenn, þrjá frá Darfur í Súdan og einn Nígeríumann. Talið er að fólkið sé á aldrinum 18 til 32 ára. Utanríkisráðuneytið hefur tilkynnt flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um málið, hún hefur haft samband við svæðisskrifstofur á Möltu og og Ítalíu, en talið er að fólkið hafi ætlað að reyna að komast þangað. Samkvæmt lögum á að fara með flóttamennina til næstu öruggu hafnar sem er á Möltu. Skipið væntanlegt til Valetta á mánudagsmorgun. Samkvæmt lögum er fólkið á ábyrgð skipstjórans þar til stjórnvöld á Möltu hafa tekið við hópnum. Íslensk stjórnvöld hafa sett sig í samband við þau vegna málsins. Þau hafa hins vegar ekki viljað gefa tryggingu fyrir því að þau taki við hópnum en þó sagt taka við þeim sem annað hvort eru veikir eða í hættu. Það er því óvíst hvað tekur við þegar þangað kemur. Birgir Rafn Sigurjónsson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar Borgar í Hrísey, sem á skipið, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað.
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira