Leitar til Mannréttindadómstóls ef Hæstiréttur kemst að sömu niðurstöðu 28. júní 2007 18:30 MYND/GVA
Jón Gerald Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélagi Baugsmanna í gegnum fyrirtækið Nordica, segist ætla leita til Mannréttindadómstóls Evrópu með mál sitt ef Hæstiréttur staðfesti dóm héraðsdóms frá því í dag. Þar var hann dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að aðstoða Baugsmenn við bókhaldsbrot með því að búa til tilhæfulausan kreditreikning. Jón Gerald sagði í samtali við fréttastofu að hann væri mjög ósáttur við dóminn. Vitnisburður hans sem vitnis fyrr í málinu hefði verið snúið upp á hann og honum gerð réttarstaða sakbornings. Þá sagði hann koma spánskt fyrir sjónir að hann og Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Baugs, hefðu fengið sama dóm. „ Ég er dæmdur fyrir að hafa aðstoðað við að hafa búið til reikninginn. Ég er ekki sá sem notaði reikninginn eða naut góðs af honum en samt sem áður fáum við sama dóm. Það finnst mér galinn dómur," segir Jón Gerald. Þá segir hann réttarkerfið á Íslandi einnota en að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. „Ef niðurstaðan verður ekki okkur í hag þá munum við leita til Evrópudómstólsins vegna þess að ég tel að það sé ekki hægt að taka framburð minn sem vitnis og ákæra mig fyrir hann," segir hann og vísar til lagagreina þar að lútandi. Þá segir han dóm héraðsdóms hafa sýnt að rétt hafi verið að fara af stað með málið. „Alla vega í dag er héraðsdómur búinn að segja að það sem ég sagði frá í upphafi þegar ég kom til Íslands haustið 2002, að Jón Ásgeir og Tryggvi Jónsson væru að misnota Baug sem þá var almenningshlutafélag sér til framdráttar, var rétt. Það er búið að staðfesta það," segir Jón Gerald og segir það sanna að málið eigi sér ekki pólitískar rætur eins og haldið hafi verið fram.
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Innlent Vara við eldislax í Haukadalsá Fréttir „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Innlent Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Innlent Fleiri fréttir Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Stálu myndavélum fyrir þrjár milljónir: „Grunar að þessu hafi verið stolið eftir pöntun“ Skrefi nær draumnum um þjónustuíbúð með vinningnum Minkurinn stakk sér á kaf eftir fiski í Elliðaám Sjá meira
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent