Lífið

Eddie Murphy skikkaður í faðernispróf

Faðernismálið kemur á erfiðum tíma fyrir Murphy, en hann ætti að vera í London að kynna nýjustu Shrek myndina.
Faðernismálið kemur á erfiðum tíma fyrir Murphy, en hann ætti að vera í London að kynna nýjustu Shrek myndina.
Eddy Murphy þarf í dag að mæta fyrir rétt og gefa DNA sýni til að skera úr um hvort hann er faðir barns kryddpíunnar Mel B.

Murphy hefur staðfastlega neitað því að vera faðir barnsins, hinnar tveggja mánaða gömlu Angel, og ekki viljað taka faðernispróf til að sanna mál sitt.

Kryddpían fyrrverandi er hinsvegar ekki í neinum vafa og hefur krafist þess að hann taki DNA próf.

Eddie Murphy og Mel B byrjuðu saman í júlí í fyrra en hálfu ári síðar tilkynnti Murphy í spjallþætti að sambandinu væri lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.