Úrslitin ráðast í Leitinni 8. júní 2007 15:50 Leitinni lýkur í kvöld.
Nýjar sjónvarpsstjörnur koma í leitirnar í kvöld þegar sigurvegarar í skemmtiþættinum Leitin að Strákunum verða krýndir í æsispennandi úrslitaþætti í kvöld. Þau voru 10 sem hófu þátttöku og freistuðu þess að komast alla leið í þessum séríslenska raunveruleikaþætti þar sem markmiðið var að uppgötva næstu sjónvarpsstjörnur Íslands. Sex eru nú horfnir af braut og eftir standa aðeins fjórir keppendur sem á morgun munu svo bítast um sigursætin þrjú. Þau keppa til úrslita: Sara Hrund Gunnlaugsdóttir 25 ára Hallur Örn Guðjónsson 23 ára Eiríkur Rósberg Eiríksson 28 ára Jóhann Sævar Eggertsson 20 ára Þau þrjú sem á endanum standa uppi sem sigurvegarar í Leitinni fá í sigurlaun sinn eigin sjónvarpsþátt á sjónvarpsstöðinni Sirkus, auk annarra smærri vinninga. Í sérflokki Með fullri virðingu fyrir öðrum keppendum þá má með sanni segja að Sara Hrund, Hallur Örn, Eiríkur og Jóhann Sævar hafi verið í sérflokki allt frá upphafi til enda keppninnar. Hallur og Jóhann unnu báðir Audda, Sveppa og Pétur á sitt band strax í áheyrnarprufunum með skrautlegu útliti, skemmtilegu fasi og einstaklega einlægri framkomu. Á hinn bóginn hafa þau Sara Hrund og Eiríkur unnið jafnt og þétt á - orðið öruggari í framkomu og lagað sig betur og betur að sjónvarpstökuvélunum. Sorptæknir, Kínafari, Uppistandari og sálfræðingur Bakgrunnur keppendanna fjögurra er býsna ólíkur. Hallur er 23 ára sorptæknir frá Akureyri. Jóhann Sævar er tvítugur ofurhugi sem ferðast hefur um Kína og nam þar m.a. þarlendar bardagalistir, Eiríkur er 28 ára og hefur getið sér nokkuð gott orð sem uppistandari og tekið þátt í keppninni um Fyndnasta mann Íslands. Sara Hrund er síðan í algjörum sérflokki. Ekki nóg með að hún sé eina stelpan í úrslitum heldur eru hún einnig hámenntuð, með gráðu í sálfræði þar sem hún hefur sérhæft sig í listaþerapíu og starfar á geðdeild Landsspítalans.
Mest lesið Brynjar skiptir Aroni út Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Lífið Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Lífið Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Lífið „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Tónlist Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Lífið Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer Lífið samstarf Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Lífið Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Lífið Fleiri fréttir Harry Potter leikari tekur aftur við hlutverki sínu Brynjar skiptir Aroni út Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Svona hljómar Himinn og jörð í flutningi Svölu Romeo Beckham og Kim Turnbull sögð hætt saman Endanlega búið spil hjá Johnson og Martin Hraustustu hjón Garðabæjar selja glæsihýsi Kveða orðróminn í kútinn: „Það eru engar deilur“ Endurfrumsýning Brúðubílsins: „Lilli er eiginlega bróðir minn“ Opinberar nákvæmar upplýsingar um brjóstaaðgerðina Geðbrigði ríður á vaðið í tónleikaröð á Dillon Í sjokki að sonurinn hafi verið á typpinu Vanvirkar fjölskyldur og hlutverkin sem skilja eftir sár Morten Harket greinist með Parkinson Heillandi heimili Sigríðar hjá Birtingi í hjarta Hafnarfjarðar Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Fjórum íslenskum útgáfum fagnað í tónlistarveislu í Iðnó Aron segist hættur í ClubDub Ragga nagli í hlutverk fjallkonu í Danmörku Dregur til baka hluta ásakana á hendur Baldoni Aron Kristinn og Lára keyptu nýstárlega miðbæjarperlu Módernískur retró-stíll í hjarta miðborgarinnar Tíu af fyndnustu dýralífsmyndunum Er með gervigreindarþjálfara Væbaramanía og múgæsingur er nýtt átak var kynnt Bergþór Másson selur slotið á ný Kaffibarinn til sölu í smækkaðri mynd Troðfylltu Laugardalshöll á umtöluðum tónleikum FM95Blö Söknuðurinn bar Skoppu og Skrítlu ofurliði Stjörnulífið: Sumarlegar skvísur og stórtónleikar Sjá meira