Samskip dæmt til að greiða ekkju sjómanns bætur 15. maí 2007 15:24 MYND/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Samskip til að greiða ekkju skipverja, sem lést þegar skip Samskipa sökk árið 1997 á leið sinni frá Íslandi til meginlands Evrópu, 1,8 milljónir króna vegna missis framfæranda. Konan byggði mál sitt á því að aðalorsök slyssins hefði verið vanbúnaður skipsins ásamt því að skipstjórnendur hefðu tekið rangar ákvarðanir og ekki staðið sig sem skyldi. Samskip héldu því hins vegar fram að slysið hefði verið óhappatilviljun sem félagið bæri ekki ábyrgð á. Dómurinn komst að því, út frá niðurstöðum rannsóknarnefndar sjóslysa og matsmanna, að útbúnaður skipsins hefði ekki verið með þeim hætti að saknæmt væri þótt ýmsu hefði verið ábótavant. Hins vegar tók dómurinn undir með konunni að skipstjórinnn hefði sýnt af sér saknæmt gáleysi með því að senda ekki út neyðarkall fyrr en tæpum þremur tímum eftir að skipið tók að halla. Samkvæmt tímaskýrslum hefði verið unnt að bjarga skipshöfninni af skipinu áður en skipinu hvolfdi og áður en áhöfnin fór í sjóinn ef neyðarkall hefði verið sent út fyrr. Segir í dómnum að eiginmaður konunnar hafi fengið hjartaáfall við það að fara í sjóinn og telur dómurinn yfirgnæfandi líkur á því að rétt viðbrögð skipstjóra á fyrri stigum hefðu leitt til þess að áhöfninni hefði verið bjargað áður en hún lenti í sjónum. Því verði að telja að andlát eiginmanns stefnanda sé bein afleiðing af þessari saknæmu háttsemi.
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira