Íslendingar bera kostnað af veru norskra hermanna hér 26. apríl 2007 12:00
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, undirrituðu nú fyrir stundu samkomulag um samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Samkvæmt því bera Íslendingar kostnað af staðsetningu norskra liðsmanna hér. Samkvæmt samkomulaginu verður um aukið upplýsingaflæði milli landanna að ræða og tengsl lögreglu- og öryggismálayfirvalda á Íslandi og í Noregi eflt. Norðmenn leggja sitt af mörkum til menntunar og þjálfunar íslensks starfsliðs, meðal annars á sviði flugeftirlits og stjórnunar, eftir nánara samkomulagi með hliðsjón af tímalengd og umfangi eins og það er orðað. Norðmenn leggi einnig sitt af mörkum til námskeiðahalds fyrir Íslendinga í upplýsingaöflun og um öryggismál. Á grunni samkomulagsins verður undirbúinn samningur um eftirlit með skipaferðum á Norður-Atlantshafi, leitar- og björgunarþjónustu og mögulegt samstarf um kaup á björgunarþylum og viðbúnað á sviði almannavarna. Æfingar verða meiri og samráð haft um aðgerðir flug- og sjóhers og landhelgisgæslu á Íslandi og hafsvæðinu umhverfis landið. Samkvæmt samkomulaginu ber Ísland kostnað vegna staðsetningar liðsmanna, kosts og nauðsynlegs stuðning á Íslandi og vegna notkunar á aðstöðu í Keflavíkurstöðinni. Samið verður um umfang og eðli stuðnings áður er tiltekin verkefni verði leyst. Ítarlegur tæknilegur samningur verður gerður. Þór Whitehead, sagnfræðingur, hefur bent á að norskir hermenn hafi tekið virkan þátt í vörnum Íslands í Seinni heimsstyrjöldinni og segir samstarf Íslands og Noregs hafa verið náið á árum Kalda stríðsins. Hingað hafi komið bæði norskar kafbátavélar til æfinga og herþotur - það sé því ekki nýtt að norski herinn fái að æfa hér á landi. Viðtal við Þór Whitehead má sjá í heild sinni hér. Samkomulagið má sjá í heild sinni hér að neðan.
Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Innlent Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Innlent Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Innlent Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Innlent Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur stærstur en nær ekki meirihluta með Miðflokki og Framsókn Björg útilokar samstarf með Miðflokknum og Einar vill forðast það „Ég veit ekki alveg hvernig stendur á þessu“ Fyrstu tölur muni líklega detta í hús eftir miðnætti Tókust á um fjölda borgarfulltrúa Tók debetkort af vitskertum vistmanni og eyddi rúmri milljón Sjálfstæðisflokkurinn feginn eftir áratugalanga eyðimerkurgöngu „Auðvitað, við erum langbesti flokkurinn“ „Því hraðar, því betra fyrir samgöngur á höfuðborgarsvæðinu“ Sjálfstæðismenn á flugi Framinn þjófnaður á fjórum stöðum í dag Enginn möguleiki á meirihluta til vinstri samkvæmt nýrri könnun Gæsluvarðhald fósturföðurins framlengt um tvær vikur Skálmöld hafði betur fyrir dómi Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona „Samfylkingin í Reykjavík er kvennagildra“ Kosning um sameiningu sveitarfélaganna ógild „Elsku pabbi, guð varðveiti þig og blessi“ Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Selalaug og tilmæli um barnaafmæli gæluverkefni sem mætti slaufa Sigfríð Ingólfsdóttir er látin Ragna Bjarnadóttir nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar Landlæknir braut á deildarstjóra réttargeðdeildar Vara við fölsuðu Xanax í dreifingu „Auðvitað með ólíkindum að þetta fái að viðgangast“ Um þrjátíu þúsund kosið utankjörfundar Páll skipstjóri stígur fram og boðar áfrýjun Framboðin missi mögulega af leiðinni að hjarta kjósenda Hnífjafnt til hægri og vinstri Útboði lokið og ný líkbrennsla tekin í notkun við lok 2027 Sjá meira