Varðliðar umhverfisins skipaðir og Kuðungurinn afhentur 25. apríl 2007 23:12 Umhverfisráðherra með Joe Zoghbi framkvæmdastjóra öryggis og umhverfismála hjá Bechtel á Reyðarfirði.
Um hundrað manns komu saman í Kjarvalsstöðum í hádeginu í dag af tilefni Dags umhverfisins. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sagði meðal annars við þetta tækifæri að Dagur umhverfisins væri tilvalinn til þess að staldra við til að meta árangurinn af starfi í umhverfismálum hér á landi og fagna því sem hafi áunnist. Skref fyrir skref og natturan.is Á samkomunni kynnti Björgólfu Thorsteinsson, formaður Landverndar, fræðsluritið Skref fyrir skref. Ritið er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins og Landverndar og er ætlað að vera leiðarvísir að því sem hvert og eitt okkar getur gert til að skapa vistvænni heim og heilsusamlegra umhverfi. Þá opnaði umhverfisráðherra umhverfisvefinn natturan.is, en á honum er að finna ítarlegar upplýsingar um umhverfisvottuð fyrirtæki, vörur og þjónustu. Varðliðar umhverfisins Umhverfisráðherra veitti viðurkenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðar umhverfisins. Keppnin er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur. Tilgangur keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Þeir sem voru útnefndir varðliðar eru nemendur í Hólabrekkuskóla, Grunnskóla Tálknafjarðar, Álftamýrarskóla, Foldaskóla og Lýsuhólsskóla. Kuðungurinn Að lokum veitti umhverfisráðherra Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins. „Tilgangur verðlaunanna er að veita því fyrirtæki sem talið er hafa skarað framúr í umhverfismálum á því ári sem verðlaunin eru veitt fyrir og eru þar með viðurkenning á því framlagi sem viðkomandi fyrirtæki hefur veitt til umhverfismála og öðrum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn meira að mörkum í umhverfismálum," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í ár var það Bechtel sem hlaut verðlaunin og í máli Gests Guðjónssonar, formanns valnefndar, kom fram að óháð því hvaða skoðun menn hafa á álverum og byggingu þeirra, þá væri það einróma mat allra sem hefðu kynnst þeirri sýn sem Bechtel hefur á umhverfismál að þar væri um að ræða algerlega nýja tíma í verktakastarfsemi á Íslandi. Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði merki fyrir Kuðunginn og það fyrirtæki sem hlýtur viðurkenninguna hefur rétt til að nota merkið í eitt ár. Á hverju ári er svo fenginn nýr listamaður til að hanna nýjan Kuðung sem Kuðungshafinn fær til eignar. Að þessu sinni var það listakonan Kogga sem gerði Kuðunginn.
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Fleiri fréttir „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Sjá meira