Innlent

Varðliðar umhverfisins skipaðir og Kuðungurinn afhentur

Umhverfisráðherra með Joe Zoghbi framkvæmdastjóra öryggis og umhverfismála hjá Bechtel á Reyðarfirði.
Umhverfisráðherra með Joe Zoghbi framkvæmdastjóra öryggis og umhverfismála hjá Bechtel á Reyðarfirði.

Um hundrað manns komu saman í Kjarvalsstöðum í hádeginu í dag af tilefni Dags umhverfisins. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra sagði meðal annars við þetta tækifæri að Dagur umhverfisins væri tilvalinn til þess að staldra við til að meta árangurinn af starfi í umhverfismálum hér á landi og fagna því sem hafi áunnist.

 

Skref fyrir skref og natturan.is

 

Á samkomunni kynnti Björgólfu Thorsteinsson, formaður Landverndar, fræðsluritið Skref fyrir skref. Ritið er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins og Landverndar og er ætlað að vera leiðarvísir að því sem hvert og eitt okkar getur gert til að skapa vistvænni heim og heilsusamlegra umhverfi. Þá opnaði umhverfisráðherra umhverfisvefinn natturan.is, en á honum er að finna ítarlegar upplýsingar um umhverfisvottuð fyrirtæki, vörur og þjónustu.

 

Varðliðar umhverfisins

 

Umhverfisráðherra veitti viðurkenningar í verkefnasamkeppni grunnskólanna, Varðliðar umhverfisins. Keppnin er samstarfsverkefni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur. Tilgangur keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Þeir sem voru útnefndir varðliðar eru nemendur í Hólabrekkuskóla, Grunnskóla Tálknafjarðar, Álftamýrarskóla, Foldaskóla og Lýsuhólsskóla.

 

Kuðungurinn

 

Að lokum veitti umhverfisráðherra Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins. „Tilgangur verðlaunanna er að veita því fyrirtæki sem talið er hafa skarað framúr í umhverfismálum á því ári sem verðlaunin eru veitt fyrir og eru þar með viðurkenning á því framlagi sem viðkomandi fyrirtæki hefur veitt til umhverfismála og öðrum fyrirtækjum hvatning til að leggja enn meira að mörkum í umhverfismálum," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Í ár var það Bechtel sem hlaut verðlaunin og í máli Gests Guðjónssonar, formanns valnefndar, kom fram að óháð því hvaða skoðun menn hafa á álverum og byggingu þeirra, þá væri það einróma mat allra sem hefðu kynnst þeirri sýn sem Bechtel hefur á umhverfismál að þar væri um að ræða algerlega nýja tíma í verktakastarfsemi á Íslandi. Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður, hannaði merki fyrir Kuðunginn og það fyrirtæki sem hlýtur viðurkenninguna hefur rétt til að nota merkið í eitt ár. Á hverju ári er svo fenginn nýr listamaður til að hanna nýjan Kuðung sem Kuðungshafinn fær til eignar. Að þessu sinni var það listakonan Kogga sem gerði Kuðunginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×