Sakar Moggann og Ríkisútvarpið um óvönduð vinnubrögð 20. apríl 2007 15:02 Kristinn H. Gunnarsson. Segir frjálslynda finna fyrir miklum meðbyr í Norðvesturkjördæmi. MYND/VGA
Morgunblaðið og RÚV styðjast við ómarktæka könnun til að sýna fylgi Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi minna en það í raun og veru er að mati Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns. Þetta kemur fram á heimasíðu Kristins. „Fjölmiðlarnir tveir verða að svara því hvers vegna þeir gera úr þessu frétt án nokkurs áreiðanleika," sagði Kristinn H. Gunnarsson í samtali við Vísi. „Þeir eiga að vita að kjördæmaniðurbrotin könnun er ómarktæk." Á heimasíðu sinni gagnrýnir Kristinn þá fullyrðingu Morgunblaðsins og RÚV að fylgi frjálslyndra í Norðvesturkjördæmi sé aðeins um 5 prósent. Bendir Kristinn á að sú könnun sem hér er stuðst við sé könnun Capacent Gallup fyrir landið allt og úrtakið í Norðvesturkjördæmi hafi aðeins verið 60 manns. Kristinn vísar á síðu sinni til tveggja annarra kannana sem gerðar voru sérstaklega í kjördæminu. Annars vegar könnun Stöðvar 2 og hins vegar könnun RÚV. Í þeim könnunum hafi úrtakið verið mun stærri eða allt að 970 manns. Þar mældist Frjálslyndi flokkurinn fyrst með 10 prósent fylgi í kjördæminu og síðan 13 prósent. Að mati Kristins eru þetta mun marktækari kannanir sem sýni mikla uppsveiflu í fylgi Frjálslynda flokksins. Kristinn segir ennfremur á heimasíðu sinni að fjölmiðlarnir tveir hafi orðið uppvísir að óvönduðum vinnubrögðum og þeir eigi að hafa burði og getu til að sinna hlutverki sínu betur.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Sjá meira