Samfylkingin upp á landsvísu en niður í Suðvesturkjördæmi 19. apríl 2007 13:25 MYND/GVA
Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn bæta við sig fylgi á landsvísu í nýrri könnun Capasent Gallups en Vinstri grænum fatast flugið og Framsókn tapar fylgi. Samfylkingin tapar hins vegar verulegu fylgi í Suðvesturkjördæmi en Vinstri grænir koma í fyrsta skipti mönnum á þing í kjördæminu, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Stöð 2. Byrjum á könnun Stöðvar tvö þar sem umtalsverðar breytingar verða á fylgi flokkanna. Þar hrynur fylgi Samfylkingarinnar um 8,3 prósent og missir flokkurinn einn kjördæmakjörinn mann. Hins vegar fengju Vinstri grænir í fyrsta skipti kjörinn fulltrúa í kjördæminu og það tvo. Flokkurinn stekkur upp um 11,2 prósentustig. Sjálfstæðisflokkurinn er mjög sterkur í Suðvesturkjördæmi og myndi bæta við sig einum manni og fá fimm kjörna á þing. Niðurstaðan er síðan alvarleg fyrir Framsókn, sem myndi missa sinn mann og þar með dytti Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra af þingi. En þá að landskönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir RÚV og Morgunblaðið dagana 12. - 16. apríl, þegar landsfundir Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokks stóðu yfir. Þar sækir Samfylkingin í sig veðrið og bætir við sig sex prósentustigum. Samfylkingin fengi 24,1 prósent ef kosið yrði nú og er orðin stærri en Vinstri grænir sem tapa sex prósentustigum frá síðustu könnun og mælast nú með 19,1 prósent. Samfylkingin fengi 17 þingmenn, tapaði þremur, en Vinstri grænir fengju 13 þingmenn, bættu við sig átta. Sjálfstæðisflokkurinn bætir töluvert við sig líka og er sem fyrr stærsti stjórnmálaflokkurinn með 40,8 prósent. Ef þetta gengi eftir myndu Sjálfstæðismenn bæta við sig sex þingmönnum. Framsókn dalar aftur á móti frá síðustu könnun og er nú með 7,9 prósent og fengi aðeins fimm þingmenn, missir sjö. Þrátt fyrir þetta halda stjórnarflokkarnir meirihluta á Alþingi. Frjálslyndi flokkurinn mælist með 4,3 prósent og kæmi ekki manni á þing og aðrir flokkar mælast með enn minna fylgi.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Sjá meira