Rangar dagsetningar á matvörur 12. apríl 2007 18:55
Dæmi eru um að íslensk matvælafyrirtæki hafi stundað það að dagsetja pökkunardag vöru degi á eftir raunverulegum pökkunardegi. Umhverfisstofnun segir það bannað og brjóta gegn öllum reglum um merkingu matvæla. Fréttastofa fékk ábendingu um að verið væri að flytja kjötvörur út á land á þriðjudag síðastliðinn eða 10.apríl. Á vörunum stóð að þeim hefði verið pakkað inn 11.apríl það er að segja í gær. Vörunni var sem sagt pakkað inn degi áður en dagssetningin sagði til um. Kjötvörurnar koma frá fyrirtækinu Ferskum kjötvörum og eru seldar í verslunum Bónus. Elín Guðmundsdóttir forstöðumaður matvælasviðs Umhverfisstofnunar segir matvælafyrirtæki hafi stundað þetta um árabil en samkvæmt reglum um merkingu matvæla sé pökkunardagur sá dagur þegar vörunni er pakkað í umbúðir og fyrirtæki megi ekki hagræða því. Elín segir orðalag Í fyrri reglugerðinni hafa verið óskýrt og matvælaframleiðendur hefðu sumir skýlt sér á bakvið það. Leifur Þórsson framkvæmdastjóri Ferskra kjötvara segir mörg matvælafyrirtæki þar á meðal Ferskar kjötvörur, dagsetja pökkunardag degi eftir að vörunni sé pakkað, og þá aðallega vörur sem fluttar séu út á land. Að sögn Leifs gerði heilbrigðiseftirlitið nýlega athugasemdir við dagsetningarnar og hefur nú verið tekið fyrir þetta hjá Ferskum kjötvörum. Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónus verslana segir að forsvarsmenn Bónus hafi ekki vitað af þessu og reynt verði að tryggja að þetta komi ekki fyrir aftur.
Mest lesið Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Innlent Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Innlent Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Innlent Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Innlent Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Innlent „Þetta er ekki eiturgas“ Innlent Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Innlent Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Innlent Fleiri fréttir Enn unnið í því að slökkva í trjákurlinu Enginn Vinnuskóli í Reykjavík í dag vegna gosmengunar Haldlagning á ketamíni hundraðfaldast á fjórum árum Salibuna á sirkustjaldinu og lélegir listamenn Óhollt magn brennisteinsdíoxíðs á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Þjóðarhreinsun eigi sér stað í heimalandinu Einn fundinn en þriggja enn saknað eftir eldsvoðann Sérsveitin mætti í útilegu MRinga Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Sjá meira