Réttlætiskröfu almennings svarað með sjónhverfingu 14. mars 2007 20:02 MYND/GVA
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sakaði stjórnarflokanna um að hafa stjórnarskrána að leiksoppi og að svara réttlætiskröfu almennings um sameign auðlinda með sjónhverfingu í nýju auðlindaákvæði í stjórnarskrá í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld. Ingibjörg Sólrún gerði komandi kosningar að umfjöllunarefni og benti á að ríkisstjórnin hefði gert margt gott í sinni stjórnartíð en vandinn væri sá að pólitískt útsýni hennar hefði verið takmarkað. Öll áhersla hefði verið á viðskiptalífið og stóriðju á meðan vandamál hefðu safnast upp. Þau sneru af byggðum landsins, öldruðum og öryrkjum og börnum og unglingum. Mikilvægt væri að byggja upp 300 hjúkrunarrými á næstu árum og að aldraðir og öryrkjar gætu unnið án þess að vera refsað með skerðingum á lífeyrisréttingum. Þá sagði hún of miklar kröfur vera gerðar til foreldra og að börn ættu kröfu á tíma þeirra. Það væri verkefni stjórnvalda og aðila atvinnulífsins að stytta vinnutíma svo foreldrar gætu verið meira með börnum sínum. Ingibjörg Sólrún sagði Ísland hafa fjarlægst nágrannaríkin þegar kæmi að velferðarmálum. Jafnaðarmenn hefðu komið að því að byggja upp velferðarkerfi hér á landi á fyrri hluta síðustu aldar og Samfylkingin þyrfti nú að endurreisa það kerfi. Hún sagði vandasama tíma fram undan í efnahagsmálum en bjart fram undan í íslensku samfélagi. Vinna þyrfti að uppgangi landsins í sátt við náttúru og með jafnvægi milli landsbyggðar og höfuðborgar og gæta þess að landið sporðreistist ekki í vaxtagleði landsins. Hún sagði kosið um það í vor hvaða flokkur væri tilbúinn að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem biðu landsins, meðal annars í samkeppni ríkja og þeirri viðleitni að tryggja sem bestan jöfnuð. Hún óttaðist ekki þann dóm. Hún væri sannfærð um að þörf væri fyrir frjálslynda og sanngjarna jafnaðarstefnu.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Sjá meira