Mengun vegna brennisteinsvetnis ekki yfir heilsuverndarmörkum 23. mars 2007 13:00 MYND/GVA
Brennisteinsvetnismengun sem borist hefur frá Hellisheiðarvirkjun til borgarinnar hefur ekki farið yfir heilsuverndarmörk Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar frá því að virkjunin var formlega gangsett eftir því mælingar umhverfissviðs borgarinnar og Umhverfisstofnunar sýna. Fram kemur í tilkynningu frá Umhverfisstofnun að íbúar í austari hverfum Reykjavíkur hafi í vetur fundið hveralykt þegar vindur blási frá virkjuninni en þá lykt megi rekja til brennisteinsvetnis sem komi upp úr borholunum á Hellisheiði. Samkvæmt mælingum í sameiginlegri loftmælistöð Umhverfissviðs Reykjavíkur og Umhverfisstofnunar á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar hefur mesti styrkur brennisteinsvetnis mælst 59 míkrógrömm í rúmmetra á sólarhring. Engin umhverfismörk eru í íslenskum reglugerðum um brennisteinsvetni en hins vegar hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gefið út viðmiðunarmörk sem eru 150 míkrógrömm í rúmmetra á sólarhring. Tekið er fram í tilkynningu Umhverfisstofnunar að ekki sé talið að alvarleg heilsufarsáhrif komi fram fyrr en að styrkur brennisteinsvetnis er orðinn hundrað sinnum hærri en þessi viðmiðun. Bent er á að fólk sé misnæmt fyrir lykt af brennisteinsvetni. Í Kaliforníu séu umhverfismörk sett við klukkustundarmeðaltalið 42 míkrógrömm í rúmmetra en þessi mörk miðast við óþægindi vegna lyktar. Við þessi mörk geta um 80 prósent almennings skynjað lyktina en að öðru leyti er talið að brennisteinsvetni sé skaðlaust heilsu fólks við þennan styrk. Árið 2006 fór styrkur brennisteinsvetnis á Grensásvegi samtals 36 skipti yfir umhverfismörk Kaliforníu en oftast stóð þetta yfir í 1-2 klukkustundir en lengst stóð slíkt yfir í hálfan sólarhring samfellt.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira