Hátt í 15 börn á leið í heiminn vegna réttarbóta 23. mars 2007 12:45
Upp undir fimmtán börn eru á leið í heiminn eftir að samkynhneigð pör öðluðust rétt til að fara í tæknifrjóvgun á Íslandi um mitt síðasta ár. Það var í lok júní á síðasta ári sem samkynhneigð pör öðluðust rétt til að fara í tæknifrjóvgun hér á Íslandi. Áður höfðu samkynhneigð pör leitað til útlanda, ekki síst til Danmerkur. Guðmundur Arason, læknir hjá Art Medica, segir að þegar þessi réttarbót kom til hafi verið uppsafnaður hópur af fólki sem vildi komast í meðferð. Á þriðja tug samkynhneigðra kvenna hefur nú þegar farið í tæknifrjóvgun og gengið vel, segir Guðmundur. Guðmundur segir flestar kvennanna hafa farið í tæknisæðingu og gengið mjög vel. Nokkrar hafi farið í glasafrjógvun og það megi segja að það hafi fengist mjög góður árangur þar sem allar hafi orðið ófrískar sem hafi farið þá leið. Guðmundur segir aðspurður að á bilinu 10-15 börn séu á leið í heiminn vegna þessa. Á sama tíma fengu samkynhneigðir rétt til ættleiðingar barna. Sá galli er á gjöf Njarðar að enn hefur ekkert land fundist sem er tilbúið til að taka á móti ættleiðingarumsóknum samkynhneigðra. Sænsk stjórnvöld hafa sömuleiðis leyft ættleiðingar samkynhneigðra en þar er sama staða uppi. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu Íslensk ættleiðing hafa því engar umsóknir borist félaginu eftir júní síðastliðinn enda hafa fulltrúar félagsins fundað með Samtökunum ´78 og þeim er því fullkunnugt um stöðuna.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira