Ráðherrar funda um Sundabraut á vegum Faxaflóahafna 22. mars 2007 19:11
Stjórn Faxaflóahafna fundar á morgun með forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og samgönguráðherra um áhuga hafnaryfirvalda á því að taka að sér framkvæmd Sundabrautar. Kostnaðurinn getur verið á bilinu tuttugu til tuttugu og tveir milljarðar króna og yrði þetta langstærsta samgöngumannvirkið í einkaframkvæmd til þessa. Bæði forsætis- og samgönguráðherra fagna frumkvæðinu og líst vel á þessi áform. Í gær samþykkti stjórn Faxaflóahafna yfir áhuga á því að koma að framkvæmdum við Sundabraut - annast fjármögnun og byggingu þessa mannvirkis frá Kollafirði að Sæbraut "...með öllum þeim mannvirkjum sem nauðsynleg eru, þ.m.t. mögulegum göngum... Málið þolir enga bið", - sagði í samþykkt stjórnarfundar. Björn Ingi Hrafnsson formaður stjóranr Faxaflóahafna fagnar góðum viðbrögðum ríkisstjórnar við þessum hugmyndum. Hann telji helst að sátt verði um jarðgangnagerðina, sem nú er í umhverfismati. Heildarkosntaður við framkvæmdina geti numið 20 til 22 milljarða - þar af 16 milljarða í jarðgöngin. Frumkvæðinu er vel tekið af ríkinu og fagnar Geir Haarde, forsætisráðherra þessu frumkvæði. Hann segir að á morgun verði fundur með honum, viðskipta- og samgönguráðherra ásamt stjórnarfulltrúum Faxaflóahafna. Þar verði málið rætt. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra fagnar einnig þessum hugmyndum og bendir á að nýleg breyting á vegalögum geri einkaframkvæmdir sem þessa mögulega. Þrátt fyrir jákvæðni í garð hugmyndarinnar bendir Sturla þó á að allar framkvæmdir séu útboðsskyldar, jafnvel þó þær séu einkaframkvæmdir, þannig að ekki sé hægt að slá því föstu að Faxaflóahafnir taki að sér verkið þó svo vilji til samstarfs sé ríkur. Ekki er að sinni tekin afstaða til þess að hálfu Faxaflóahafna hvort gjaldtaka mæti kostnaði af þessari framkvæmd. Ákvörðun um það mál kemur til kasta ríkisvaldsins.
Mest lesið Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Innlent Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Innlent Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Innlent Vann 131 milljón króna á kjördegi Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn á Akureyri fallinn „Það er ekki eftirspurn eftir Guðmundi Árna lengur“ Fyrstu tölur í Hafnarfirði: Meirihlutinn heldur þvert á spár Halla hlaut flest atkvæði í Fljótsdalshreppi Gísli Gunnar efstur í Grýtubakkahreppi Listi sveitarstjórans með flesta fulltrúa Í áfalli yfir fyrstu tölum úr Kópavogi Fyrstu tölur úr Kópavogi: Sjálfstæðisflokkur einn í meirihluta Sjálfkjörin í Kjósarhreppi Lokatölur úr Ásahreppi: Ísleifur og Helga efst með 86 atkvæði Nágrannaslagur í Vesturbænum 94 prósenta kjörsókn í Árneshreppi Fengu boð í grillveislu en ekki að kjósa Lokatölur úr Skaftárhreppi: Meirihlutinn kolfallinn Aðalsteinn verður áfram sveitarstjóri Svalbarðsstrandarhreppur fyrstur til að birta lokatölur Vann 131 milljón króna á kjördegi Mynda Hildur og Pétur meirihluta eftir allt saman? Bein útsending: Gott kosningakvöld með öllu tilheyrandi Eftirlitsmenn á vegum Evrópuráðsins fylgjast með kosningunum Deilt um orð Hildar um „súkkulaðikleinuna“ Sönnu Svona nýttu oddvitarnir sínar tuttugu sekúndur Enginn augljós meirihluti á vinstri vængnum Kjördagur runninn upp Fyrrverandi sendiherra skiptir óvænt um skoðun Kosningaspá Vísis: Nýr möguleiki opnast til hægri Kosningavaktin 2026: Allt um kosningarnar á einum stað Nýjustu tölur í Reykjavík Nýjustu tölur í Kópavogi Nýjustu tölur í Hafnarfirði Sjá meira