Bílar fuku víða útaf og rýma þurfti hús á Vestfjörðum 20. mars 2007 18:17
Skjólborð af vörubíl fauk framan á tvo bíla á Reykjanesbraut og rúta með um þrjátíu unglinga innanborðs fauk út af Suðurlandsvegi. Í Bolungarvík voru hús rýmd vegna snjóflóðahættu. Bæta fór í veðrið um tíu leytið í morgun en á sama tíma barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að bíll hefði fokið út af rétt norðan við Grundarhverfið á Kjalarnesi. Miklar vindhviður voru einnig undir Hafnarfjalli í morgun en þar fuku tveir bílar út af. Engin alvarleg slys urðu á fólki. Lögreglan lokaði Suðurlandsvegi á tólfta tímanum eftir að fjöldi ökumanna hafði lent í vandræðum við Sandskeið og á Hellisheiði. Skyggni og færð voru með versta móti og voru björgunarsveitarmenn kallaðir út til að aðstoða ökumenn sem misst höfðu bíla sína út af. Ökumenn sem leið áttu um Holtavörðuheiði þurftu sumir hverjir einnig að kalla á aðstoð. Lögreglu bárust tilkynningar um nokkur óhöpp við Sandskeið og þar í kring en vindhraði fór upp í 29 metra á sekúndu þegar verst lét. Suðurlandsvegur var opnaður aftur um klukkan hálf tvö eftir að veðrið tók að lægja. Skjólborð af vörubíl fauk framan á tvo bíla á Reykjanesbraut á öðrum tímanum. Farmur sem verið var að flytja fauk út um allt og talsverðar tafir urðu á umferð vegna óhappsins. Fyrir hádegi fauk rúta með um þrjátíu erlendum ungmennum innanborðs út af Suðurlandsvegi vestan Markarfljóts. Þar slasaðist þó enginn. Björgunarsveitir á Snæfellsnesi voru kallaðar út í morgun vegna óveðurs í Snæfellsbæ. Þar fuku þakplötur af nýbyggingu í Ólafsvík og flotbryggja losnaði frá höfninni á Rifi og fór af stað en tíu bátar voru fastir við hana. Veðrið tók að ganga niður á Suður- og Vesturlandi síðdegis. Nokkuð bætti hins vegar í rigningu og þyngdist færð við það aftur á Hellisheiði. Gert er ráð fyrir að bæta taki í vind norðan- og austanlands með kvöldinu en þar má búast við rigningu og hviðukenndu veðri. Rýma þurfti fjögur hús við Traðarland og Dísarland í Bolungarvík vegna snjóflóðahættu, en snjóflóðahætta er einnig á hesthúsasvæðinu í Hnífsdal. Þá er viðbúnaðarstig vegna snjóflóðahættu við sorpbrennslu Funa í Engidal í Skutulsfirði. Varað er við snjóflóðahættu í Óshlíð en þó enn er opið þar fyrir umferð. Veginum um Súðavíkurhlíð og Kirkjubólshlíð á milli Ísafjarðar og Súðavíkur var lokað í dag eftir að tvö snjóflóð féllu þar á tólfta tímanum og hefur hann ekki verið opnaður aftur. Varðskip Landhelgisgæslunnar nú á leið til Reykjavíkur með Sólborgu RE-270, 115 tonna dragnótarbát, í togi. Báturinn varð vélarvana á Sandvík við Reykjanes um tvöleytið í dag. Fimm manns eru í áhöfn en ekki er búist við að komið verði til Reykjavíkur fyrr en seint í kvöld.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira