Sérfræðingar sjá mikla annmarka á auðlindatillögu 14. mars 2007 18:19
Flestir þeir sérfræðingar, sem komið hafa fyrir stjórnarskrárnefnd í gær og í dag, telja að tillaga stjórnarflokkanna til breytingar á stjórnarskránni auki réttaróvissu um eignarhald á auðlindum. Fulltrúar útgerðarmanna segja tillöguna engu breyta um að handhafar veiðiheimilda eigi heimildirnar og þær verði ekki afturkallaðar án bóta. Alþingi lauk fyrstu umræðu um stjórnarskrármálið í gær og vísaði því til stjórnarskrárnefndar sem fundaði um málið í gærkvöldi. Nefndin kom aftur saman til fundar í morgun, en hún hefur kallað til sín fjölda sérfræðinga til að gefa álit sitt. Össur Skaprhéðinsson annar fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni efast um að málið fái afgreiðslu á þessu þingi og efast jafnvel um að stjórnarflokkarnir hafi áhuga á því að koma því óbreyttu í gegn. "það er satt að segja búið að skjóta það alveg í tætlur í meðferð nefndarinnar og enginn af þeim níu sérfræðingum sem komið hafa fyrir nefndina hafa lokið lofsorði á ákvæðið," segir Össur. þeir segðu allir að það yki réttaróvissu. Össur segir suma sérfræðingana jafnvel segja að ákvæðið styrki kvótakerfið í sessi og geri löggjafanum erfiðara fyrir að breyta því. Málið gæti því vera að þróast í þveröfuga átt miðað við markið þeirra sem lögðu af stað með það. Forysta samtaka útgerðarmanna mætti á fund nefndarinnar í morgun, en framkvæmdastjóri LÍÚ telur óþarfa að setja ákvæði sem þetta inn í stjórnarskrá, enda hafi ríkið allar valdheimildir til að stjórna veiðunum. "Við höfum náttúrlega rétt nú þegar og svo greinir menn á hvort hann er beinn eignaréttur eða óbeinn og honum verður auðvitað ekkert breytt, hvort sem er með stjórnarskrá eða með almennum lögum," segir Friðrik Arngrímsson framkvæmdastjóri Landsambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Friðrik segir alveg ljóst að eignarréttindi útgerðarmanna, bein eða óbein, séu stjórnarskrávarin.Össur Skarphéðinsson segir að sjónarmið stjórnarandstöðunnar og Framsóknarflokksins um hvað eigi að vera í auðlindarákvæði stjórnarskrárinnar séu svo lík, að ekkert mál sé að komast að samkomulagi milli þessara flokka og afgreiða stjórnarskrármálið tiltölulega hratt. Jónína Bjartmars, fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni, segir að sérfræðingar hafi uppi efasemdir um að með ákvæðinu náist það fram sem stefnt var að. En Össur segir það beinlínis ganga í öfuga átt.Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki, fór yfir það á fundi Auðlindaréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík í dag, hverning reynt hefur veriða að finna auðlindamálum stað í stjórnarskrá á undanförnum árum. Hann reifaði síðan hvað hann teldi vera markmiðið með því að koma ákvæði um auðlindir inn í stjórnarskrána nú."Meginmarkið frumvarpsins er einfaldlega pólitísk yfirlýsing. Þetta kom skýrt fram hjá forsætisráðherra þegar hann fylgdi málinu eftir," sagði Bjarni. Pólitísk yfirlýsing sem áréttaði fullveldisrétt ríkis og þjóðar yfir þeim auðlíndum sem væri að finna á íslensku forráðasvæði , sem ekki lytu eignarrétti annarra og þær skyldu nýttar með heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi.
Mest lesið Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Innlent Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Innlent Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Innlent Frímúrarareglan vill lögbann á nýjar lögreglureglur Erlent Halldór Blöndal borinn til grafar Innlent Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Innlent Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Innlent Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Innlent Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Innlent Hér verða áramótabrennur á gamlársdag 2025 Innlent Fleiri fréttir Föðurnum í Suður-Afríku enn haldið sofandi Skipuðu húsráðanda að elda fyrir sig áður en ræningjarnir ruddust inn Fannst látinn utandyra í Borgarnesi Halldór Blöndal borinn til grafar Fimm með vanlíðan komast í Skjólshús í tvær vikur Kolbrúnu Bergþórs sagt upp á Mogganum Sagt upp eftir 26 ár á Morgunblaðinu Kominn tími á gos og Veðurstofan öllu viðbúin Sýknuð af ólöglegum innflutningi lyfja vegna rangra upplýsinga Lyfjastofnunar Þriggja hatta Inga segir engin ráðherraskipti í pípunum Desember að komast á lista yfir þá allra hlýjustu Erlendir ferðamenn talsvert slasaðir eftir áreksturinn Samið um Skjólshús og gos gæti komið á hverri stundu Hér verða áramótabrennur á Gamlársdag 2025 Björn Ingi leiðir ekki Miðflokksmenn í borginni Gestir á Edition stukku út á náttfötunum Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Óvenju mikið að gera hjá slökkviliðinu Sósíalistar líta til harðstjórnarríkja sem fyrirmynda Þrír réðust á einn og höfðu af honum farsíma Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri „Rúllandi rafmagnsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Sjá meira