Vestfirðingar misstu af uppsveiflunni 13. mars 2007 18:30
Vestfirðingar hafa misst af uppganginum í tengslum við stóriðju og misst frá sér aflaheimildir á undanförnum árum og það hefur sitt að segja um bágt atvinnuástand að mati forsætisráðherra. Hann telur ekki koma til greina að veita fyrirtækjum á jaðarsvæðum skattaívilnanir til að hvetja til atvinnustarfsemi á landsbyggðinni. Ríkisstjórnin ákvað í morgun að skipa fulltrúa úr ráðuneytum formanna stjórnarflokkanna í viðræðunefnd við Vestfirðinga til að kanna hverning ríkisvaldið getur komið að því að styðja við uppbyggingu atvinnulífs á Ísafirði. En Ísfirðingar hafa kallað eftir aðgerðum stjórnvalda vegna síversnandi stöðu í atvinnumálum, nú síðast með brotthvarfi Marels úr bænum. Geir H Haarde forsætisráðherra segir að meðal annars verði farið yfir hugmyndir heimamanna um aðkomu stjórnvalda. "Þeir hafa farið á mis við uppbygginguna sem tengst hefur stóriðju t.d. á Austurlandi og hér í nágrenni höfuðborgarinnar. Það er ein skýring. Síðan hafa náttúrlega aflaheimildir flust frá Vestfjörðum. Nýjasta vandamálið er svo að hátæknifyrirtækið Marel hyggst loka sinni starfsstöð þar. En þar hefur veruð mikill vaxtabroddur í hátæknistarfsemi sem á rætur að rekja langt aftur í tímann á Ísafirði, þar sem menn hafa verið mjög framsýnir og duglegir í því máli," segir forsætisráðherra. Fyrir Alþingi liggja frumvörp sem miða að því að fá kaupskipaútgerðir til að skrá skip sín á Íslandi að nýju, með því að bjóða þeim skattaívilnanir. Geir telur erfitt að grípa til einhverra slíkra aðgerða til að skjóta stoðum undir atvinnulíf fyrir vestan. "Við skulum ekki reikna með slíku en allt verður þetta skoðað í þessum vinnuhópi sem fær það verkefni að vinna hratt í málinu," segir Geir H Haarde forsætisráðherra.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira