Andstæðingar álversstækkunar eiga við ofurefli að etja 9. mars 2007 18:50
Heldur hefur dregið úr andstöðu Hafnfirðinga við stækkun álversins í Straumsvík, ef marka má nýja könnun sem Blaðið birtir í dag. Talsmaður Sólar í Straumi, sem berst gegn stækkuninni, segir andstæðinga álversins eiga við ofurafl að etja. Í könnun sem Blaðið birtir í dag eru heldur fleiri íbúar í Hafnarfirði en áður hlyntir stækkun álversins í Straumsvík, eða 50,8 prósent en 49,2 prósent eru því andvígir. Þetta er nokkuð önnur niðurstaða en varð í könnun sem Capacent gerði fyrir Alcan í janúar en þá sögðust 51 prósent vera á móti stækkuninni og 39 prósent voru henni hlyntir. Síðan þá hefur verið stofnaður félagsskapur þeirra sem styðja stækkunina og fyrirtækið hefur beitt sér með ýmsu móti til að sannfæra Hafnfirðinga um ágæti stækkunarinnar. "Við erum að undirbúa að kynna okkar sjónarmið fyrir bæjarbúum. Við teljum að það sé aðalatriðið að bæjarbúar taki upplýsta ákvörðun hinn 31. mars," segir Pétur Óskarsson, formaður Sólar í Straumi. Það sé hins vegar erfitt að afla fjár í baráttuna. Annars vegar séu íbúar bæjarins en hins vegar alþjóðlegt stórfyrirtæki sem sæki sér margra milljarða hagnað á Íslandi á hverju ári. Pétur segir erfitt að fá fé til að kosta baráttuna gegn stækkuninni og stuðningur bæjarins við starf Sólar í Straumi sé sáralítill. Okkur líður svolítið eins og við séum að fara með vasahníf í kjarnorkustríð," segir Pétur. Hann hefur engu að síður trú á því að meirihluti Hafnfirðinga muni kjósa gegn stækkun. Miklum rangfærslum hafi verið haldið á lofti í umræðunni að undanförnu sem andstæðingar stækkunarinnar eigi eftir að leiðrétta. Þá sé von á skýrslu frá Hagfræðistofnun sem muni skýra ýmislegt.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Inga segir já Innlent Fleiri fréttir Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Sjá meira