Innlent

15 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir barnanauðgun

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann á áttræðisaldri í 15 mánaða fangelsi, vegna kynferðisbrota. Maðurinn misnotaði 10 ára sonardóttur sína ítrekað.

12 mánuðir af refisingunni eru skilorðsbundnir. Brotin áttu sér stað á Akureyri á árunum 2004-2006 og misnotaði maðurinn sonardóttur sína á sínu heimili og stúlkunnar. Hann káfaði á brjóstum hennar og kynfærum og setti fingur í kynfæri hennar.

Lögreglu varð fyrst kunnugt um málið með bréfi frá Barnaverndarnefnd Eyjafjarðar í ágúst í fyrra. Við yfirheyrslur játaði maðurinn athæfið en bar því við að honum hefði ekki fundist stúlkan mótfallin athæfinu.

Stúlkan var 10-12 ára þegar brotið var gegn henni. Hún bar fyrir dómi að afi hennar hefði einu sinni snúið upp á handlegg hennar svo hún hafi fundið til í úlnlið og komið síðan fram vilja sínum. Þá hafi afinn sagt henni að hún mætti alls ekki segja frá þessu.

Hegðun stúlkunnar breyttist mjög eftir að brotin hófust. Hún kaus einveru, varð lífsleið og talaði jafnvel um að fyrirfara sér. Hún fann oft fyrir höfuðverk og eymslum í maga og var veik án þess að skýringar fyndust. Líðan stúlkunnar batnaði eftir að hún sagði sína sögu.

Í dómi héraðsdóms segir að brot ákærða hafi verið gróf og með atferli sínu hafi afinn brotið gegn því trausti og öryggi sem barn á að njóta í samvistum við nána fjölskyldu sína. Hann hafi ekkert séð athugavert við hegðun sína fyrr en í viðtölum við sálfræðing eftir að málið varð opinbert. Þykir hann ekki eiga sér aðrar málsbætur en þær að hann hafi játað brot sín að mestu

Fjölskipaður dómur dæmdi í málinu og var manninum einnig gert að greiða barnabarni sínu 850.000 krónur í skaðabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×