Innlent

Fækkar um 60 skip í fiskiskipaflotanum

Fiskiskipum í íslenska fiskiskipaflotanum sem voru á skrá hjá Siglingastofnun fækkaði um 60 í fyrra eftir því sem tölur Hagstofunnar leiða í ljós. Voru þau nærri 1700 talsins við lok síðasta árs, þar af um helmingur vélskip. Samanlögð stærð þeirra er um 97 þúsund brúttótonn. Þá voru 63 togarar í fiskiskipaflotanum og hafði þeim fækkað um tvo en heildarstærð togarflotans var um 78 þúsund brúttótonn. Enn fremur voru opnir fiskibátar um 780 talsins og samtals um 3.700 brúttótonn að stærð. Mest fækkun varð í þeim hópi eða um nærri fimmtíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×