Innlent

Vöruskiptahalli um sjö milljarðar í janúar

MYND/GVA

Vöruskiptahallinn heldur áfram að vera óhagstæður en hann reyndist neikvæður um tæpa sjö milljarða í janúarmánuði samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Vörur voru fluttar út fyrir rúma nítján milljarða króna sem er um sex prósentum minna en á sama tíma í fyrra miðað við fast gengi. Á móti kemur að vörur voru fluttar inn fyrir rúma 26 milljarða sem er nærri 15 prósentum minna en á sama tímabili í fyrra.

Útflutningur á sjávarafurðum dróst saman í janúar í ár miðað við janúar 2006 ef miðað er við fast gengi en útflutningur á iðnaðarvörum jókst hins vegar um nærri 50 prósent milli áranna. Innflutningur á mat og drykkjarvöru jókst um fjórðung í janúar frá fyrra ári en innflutningur á hrá- og rekstarvörum og flutningatækjum dróst umtalsvert saman á sama tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×