Tæplega 30 milljarðar á höfuðborgarsvæðið 2. febrúar 2007 18:30
Um tuttugu og átta milljarðar fara í vegaframkvæmdir í Reykjavík og nágrenni samkvæmt samgönguáætlun sem lögð verður fyrir Alþingi eftir helgina. Fjármunir verða tryggðir svo hægt verði að lengja flugbrautina á Akureyri þannig að farþegaþotur geti tekið þar á loft fullfermdar. Stjórnarandstöðuna klæjar í fingurna að fá að fletta samgönguáætlun til næstu fjögurra ára og ýta fast á samgönguráðherra að skila henni til umræðu á Alþingi. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar fara lang hæstu fjárframlögin til framkvæmda í Norðvesturkjördæmi. Tæpir fjórir milljarðar fara í jarðgöng milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, stefnt er að því að klára að malbika veginn um Ísafjarðardjúp á næstu fjórum árum og ráðist verður í lagningu nýs vegar um hluta Barðastrandar. Og Reykjavík og nágrenni fá líka sitt því áætlað er að setja um 28 milljarða í vegaframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu á næstu fjórum árum. Ein þeirra stórframkvæmda sem ráðist verður í er lagning mislægra gatnamóta við Miklubraut og Kringlumýrarbraut. Þá verður lagt fjármagn í gerð Sundabrautar sem verður mjög stór og mikil framkvæmd. Í samgönguáætlun er líka gert ráð fyrir að breikka allar helstu leiðir út úr höfuðborginni, við Vesturlandsveg og Suðurlandsveg. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar geta þeir Sunnlendingar sem vilja að farin verði svo kölluð 2 + 2 leið við breikkun Suðurlandsvegar andað rólega, því gert er ráð fyrir að sú leið verði farin. Þá geta þeir sem þrýst hafa á lengingu flugbrautarinnar á Akureyri tekið gleði sína, því fjármagn er tryggt í það verkefni, en þar hafa stórar þotur ekki getað tekið á loft fullfermdar vegna þess að flugbrautin er ekki nægjanlega löng. Samgönguáætlun verður að öllum líkindum lögð fyrir Alþingi á mánudag.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira