Umsókn um aðild að ESB gæti skapað aga í efnahagsmálum 4. janúar 2007 12:31
Framkvæmdastjóri Alþýðusambandsins telur að það geti komið nauðsynlegum aga á efnahagsmál þjóðarinnar, að fara í umsóknarferli að Evrópusambandinu. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, telur hagsveifluna hér á allt öðru róli en í nágrannalöndunum og þess vegna sé ekki hagstætt að hefja umsóknarferli nú. Verðbólga er hærri á Íslandi en í flestum ríkjum Evrópu, vextir eru hvergi eins háir í vestrænum heimi og Íslendingar eiga heimsmet í viðskiptahalla. En hagvöxtur á Íslandi hefur líka verið meiri en hann er að meðaltali í Evrópu og víðar. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambandins, segir að það geti hjálpað til við að koma jafnvægi á efnahagsmálin, ef Íslendingar hefja umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu, að því gefnu að menn löguðu efnahagsstefnuna að skilyrðum Evrópusambandsins fyrir aðild. Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir hins vegar að þetta yrði óþægilegt fyrir Íslendinga. „Vegna þess að hagsveiflan er ekki á sama róli hjá okkur og í nágrannalöndunum og hvað þá til jafnaðar yfir allt Evrópusambandið," segir Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Íslendingar geti hins vegar vel náð þessum aga og eigi að gera það. Framsóknarmenn og fleiri aðilar líti svo á að það sé mikilvægt stefnumið fyrir komandi ár, þegar miklu umbreytingatímabili sé að ljúka í íslensku viðskiptalífi og fjármálakerfi. Ráðherra segir að miklu stórframkvæmdatímabili sé að ljúka og þá sé kominn réttur tími til að vinna að langvarandi stöðugleika og jafnvægi í íslenskum efnahags- og viðskiptamálum. Íslendingar uppfylla ekki öll skilyrði fyrir aðilda að Evrópusambandinu. Þar munar mestu um viðskiptahallinn er allt of mikill og verðbólgan sömuleiðis allt of há. Skýringin á stöðugri hækkun vaxta undanfarin tvö ár er að verðbólgumarkmiðum Seðlabankans hefur ekki verið náð síðustu tvö árin. Jón segir margt benda til að hröð hjöðnun verðbólgu sé að hefjast. „Og við nálgumst og náum verðbólgumarkmiði Seðlabankans á seinni hluta þessa árs," segir Jón Sigurðsson.
Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Innlent „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Innlent „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Innlent Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Innlent Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Innlent „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Innlent Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík Innlent Fleiri fréttir „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Lögreglu hafi stafað hætta af manninum „Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu „Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp „Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Ósáttur í bílalest á Suðurlandsvegi Breytingar á meirihluta í Skagafirði í fyrsta sinn í tuttugu ár Nóg að gera hjá áhöfnum björgunarskipa Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjá meira