Bæjaryfirvöld á Akureyri sökuð um klíkuskap 4. janúar 2007 12:45
Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Plastáss á Akureyri sakar bæjaryfirvöld þar um hringlandahátt og klíkuskap í útboðsmálum bæjarins. Bæjaryfirvöld vísa slíku á bug. Í sumar auglýstu Fasteignir Akureyrarbæjar eftir 1000 fermetra húsnæði fyrir starfsemi Plastiðjuna Bjarg en þar starfa einstaklingar með skerta starfsgetu. Fyrirtækið Plastás skilaði inn gögnum ásamt fleirum og fóru samningaumleitanir fram um að fyrirtækið byggði nýtt húsnæði á Óseyri og myndi leigja bænum þar hluta húsnæðisins til tíu ára. Lögð var áhersla á að húsnæðið yrði að vera glænýtt. Undirbúningur þessa verkefnis var langt kominn og átti að afhenda húsnæðið í október næsta ár þegar bærinn stytti afhendingartímann til 15. maí næsta vor og bað um nýja verkáætlun. Plastás lét gera nýjar teikningar og lagði út í mikinn kostnað, að sögn framkvæmdastjóra. En þegar næsti fundur fór fram kom enn fram ný krafa um að afhendingartíminn yrði styttur til 15. mars. Með því var fyrirtækinu ýtt út af borðinu að sögn framkvæmdastjóra Plastáss. Á meðan þessu fór fram hafði annar einstaklingur gert tilboð í gamalt húsnæði við Furuvelli 1 og boðið bænum leigusamning. Bærinn skoðaði húsnæðið og leist ekki á, sagði það ekki henta. Þá bauð annað fyrirtæki í Furuvelli, Höldur, sem leigir bænum nú húsnæði Plastiðjunnar Bjargs á Gleráreyrum í sama hús að Furuvöllum, og ákvað bærinn þá að ganga til samninga við Höld og leigja út Furuvelli 1 fyrir starfsemina. Höldur hafði aldrei verið inni í samningaferlinu til þessa og spyr framkvæmdastjóri Plastáss hvort hugast geti að pólitísk tengsl hafi þarna getað skipt máli. Hjá Fasteignum Akureyrarbæjar sagði Guðríður Friðriksdóttir að vegna sérstakra skipulagsaðstæðna hefði þurft að hraða afhendingu og væri miður að það hefði valdið útboðsaðilum vandræðum. Ásökunum um pólitískar ákvarðarnir væri hins vegar vísað á bug.
Mest lesið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Innlent Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Erlent Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Innlent Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Erlent „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Innlent Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Erlent Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Innlent „Við getum gert það sem við viljum“ Erlent Pallborðið: Síðasta einvígið Innlent Kom ekki á teppið Innlent Fleiri fréttir Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Heimilisofbeldismálin alvarlegri en áður og fundað um Úkraínu í Abu Dhabi Pallborðið: Síðasta einvígið Játaði meira og meira eftir því sem á leið Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Nú geta íbúar skráð sjálfir hvað megi betur fara í borginni „Þetta er svolítið óvenjulegt, ég er ekki á þingi“ Landsleikir á vinnutíma fela í sér tækifæri Pétur vill leiða Viðreisn í Kópavogi Kom ekki á teppið Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Lilja sækist eftir því að leiða Framsókn Willum fer ekki fram og styður Lilju Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Magnea vill hækka sig um sæti Vissu ekki af kynferðisbrotinu fyrr en lögreglan hafði samband Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Laugarnestangi friðlýstur sem menningarlandslag Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Leita manns vegna kynferðisbrots við Austurbæjarbíó Sósíalistar sendu nær allar tekjur í félög tengdum fyrri stjórn Mætast í Pallborðinu á lokasprettinum Kafað í óbirta og umtalaða skýrslu um Félagsbústaði Rannsóknaskipin gera hlé á loðnuleit vegna óveðurs Viðreisn býður fram undir merkjum Samfylkingar Þrjú erlend her- og varðskip í Reykjavík Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ Sjá meira