Hestamenn uggandi vegna tíðra slysa 4. janúar 2007 12:30
Hestamenn eru uggandi yfir alvarlegum og tíðum slysum á hestamönnum, nú síðast um helgina. Hópur lækna, lögfræðinga og hestamanna verður settur saman til að rýna í orsakir slysanna. Rösklega fimmtug kona lést við Kaldárselsveg síðastliðinn laugardag, líklega eftir fall af hestbaki. Að minnsta kosti tveir hafa á síðasta ári hlotið alvarlegan mænuskaða og talið er að á síðustu misserum hafi átta manns skaddast á mænu og fleiri en einn hestamaður látist í útreiðartúr. Taugaskurðlæknir sem fréttastofa ræddi við sagði óvenju grimm og ljót slys á hestamönnum undanfarið árið vera bullandi áhyggjuefni. Sú skoðun hefur heyrst að reiðhjálmar geti við fall af hestbaki valdið alvarlegum mænuskaða en þeir læknar sem fréttastofa ræddi við þvertaka fyrir það. Ekkert bendi til að hjálmar auki hættu á meiðslum á hálsi eða mænuskaða. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamannafélaga, tekur undir það. Þetta hafi heyrst í umræðunni og sé álíka og þegar bílbelti hafi verið lögleidd. Þá hafi margir talið að þau væru völd að slysum. Hjálmarnir hafi klárlega bjargað mörgum og í miklu fleiri tilfellum en þau nokkurn tíma valdið slysum. Hestamannafélögin hyggjast setja saman vinnuhóp lækna, lögfræðinga og hestamanna til að greina orsakir þeirra alvarlegu slysa sem orðið hafa. Sömuleiðis er hinn landskunni hestamaður Sigurbjörn Bárðarson með í burðarliðnum myndband um það sem ber að varast fyrir nýliða í hestamennsku. Haraldur segir menn engan grun hafa um hvað valdi þessum alvarlegu slysum.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent Fleiri fréttir Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira