Reykjavíkurborg sýknuð af kröfum ættingja Kjarvals 3. janúar 2007 15:02 Kristbjörg Stephensen, lögmaður Reykjavíkurborgar, svara spurningum fréttamanna eftir dóminn. MYND/GVA
Reykjavíkurborg var í Héraðsdómi Reykjavíkur sýknuð af öllum kröfum ættmenna Jóhannesar Kjarvals listmálara. Erfingjarnir krörðust þess að Reykjavíkurborg léti af hendi rúmlega 5000 málverk og yfir eitt þúsund bækur sem borgin telur að listamaðurinn hafi gefið sér árið 1968.Í stefnu erfingja Jóhannesar var því haldið fram að engin skjöl væru til sem sönnuðu að listmálarinn hefði gefið Geir Hallgrímssyni, þáverandi borgarstjóra, munnlegt loforð um að allar eigur hans ættu að vera í umsjá Reykjavíkurborgar.Fram kemur í dómnum að meginágreiningur aðila hafi snúist um það hvort Jóhannes hefði gefið Reykjavíkurborg munina og bent á að ekki lægi fyrir skriflegur gjafagerningur þess efnis frá Jóhannesi Kjarval.Reykjavíkurborg byggði vörn sína á að gjöfin hefði verið gefin og við henni tekið á fundi Kjarvals og Geirs 7. nóvember 1968 og vitnað var til dagbókar Guðmundar Alfreðssonar og skýrslu hans fyrir dómi þar um. Þá hafi ættingjar Kjarvals verið viðstaddir opnun Kjarvalsstaða í mars 1974 þar sem fram hafi komið bæði í ræðu þáverandi borgarstjóra, Birgis Ísleifs Gunnarssonar, sem og í sýningarskránni sem gefin hafi verið út í tilefni af opnunarsýningunni að um gjöf væri að ræða.Í dómnum segir að óumdeilt sé að Reykjavíkurborg hafi nú í hartnær 40 ár haft óslitið eignarhald á gjöf Kjarvals og hafi frá upphafi umráða sinna á verkum og munum Kjarvals umgengist hana sem sína eign og sýnt þá afstöðu sína í verki. Í ljósi hins stórkostlega tómlætis stefnanda að gera ekki fyrr en nú, mörgum áratugum eftir að Reykjavíkurborg hafi fengið umráð yfir gjöf Kjarvals, tilkall til hennar, sé það stefnanda að sanna að hefð samkvæmt hefðarlögum hafi ekki komist á.Þegar litið sé til gagna þeirra sem lögð hafa verið fyrir dóminn, einkum afdráttarlauss framburðar Guðmundar Alfreðssonar og skýrslu Þorvaldar Þorvaldssonar, um að Jóhannes S. Kjarval hafi gefið Reykjavíkuborg umrædda gjöf þykir fram komin sönnun þess að Jóhannes Kjarval hafi gefið stefnda muni þá sem stefnendur krefja um í máli þessu og telja eign dánarbús hans. Samkvæmt því var Reykjavíkurborg sýknuð af öllum kröfum stefnanda í máli þessu.
Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira